Fréttir

Flokkarnir geri grein fyrir afstöðu sinni til hersins

3.7.2003

"Vilji menn í alvöru ná farsælli niðurstöðu í þessu máli til framtíðar gengur ekki að berja höfðinu við steininn og telja sjálfum sér trú um að heimurinn hafi engum breytingum tekið á síðustu áratugum og að ekki þurfi að bregðast við þeim breytingum. Ég hef grun um að þeir Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson viti innst inni að þeir láta stjórnast af blöndu af íhaldsemi og óskhyggju í þessu máli. Þess vegna finnst þeim ágætt að geta pukrast með þetta í leyni. Það verður hins vegar að gera kröfu til þeirra og allra stjórnmálaflokka í landinu að þeir geri grein fyrir afstöðu sinni: Hvaða stefnu hafa þeir og hver eru markmiðin? Þetta er þungamiðjan í málinu og um hana má aldrei ríkja nein leynd", segir Ögmundur Jónasson í grein sinni "Flokkarnir geri grein fyrir afstöðu sinni til hersins", sem birtist í heild sinni í greinahólfi síðunnar.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica