UVG gagnrýna íslensk stjórnvöld
Ung vinstri græn hafa sent frá sér eftirfarandi ályktun:
UVG gagnrýna íslensk stjórnvöld
Ung vinstri græn fagna áformum bandarískra stjórnvalda um að draga úr eða hætta hernaðarstarfsemi á Keflavíkurflugvelli. Jafnframt harma Ung vinstri græn afstöðu Framsóknarflokks, Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokks í málinu þar sem allir þessir flokkar virðast bundnir á klafa fornaldarlegs hugsunarhátts þar sem hernaðarhyggja lifir góðu lífi. Íslendingar eiga að halda í sérstöðu sína sem herlaus þjóð með sjálfstæða utanríkisstefnu og nýta það færi sem gefst nú á að vera það í verki.
Ung vinstri græn harma enn og aftur stuðning ríkisstjórnarinnar við árásarstríð Bandaríkjamanna og Breta gegn Írak enda hefur komið í ljós að þær ástæður sem voru gefnar fyrir því stríði, t.d. meint gereyðíngarvopnaframleiðsla Íraka, voru byggðar á sandi. Ung vinstri græn spyrja hver sé ábyrgð íslenskra ráðamanna á því að hafa stutt stríðið og morð á óbreyttum borgurum á þessum upplognu forsendum. Ennfremur hvort ríkisstjórnin hafi stutt stríðið í von um að geta haldið lengur í bandaríska herstöð á Keflavíkurflugvelli.
Að lokum harma Ung vinstri græn vinnubrögð íslenskra stjórnvalda gagnvart utanríkismálanefnd Alþingis sem einkennast af gerræði og valdahroka. Sama má segja um framkomu stjórnvalda gagnvart íslensku þjóðinni þar sem lýðræðislegur réttur almennings til að vita um framgang málsins er virtur að vettugi.

