VG í Reykjavík ályktar um hermálið
Stjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun:
"Vinstrihreyfingin grænt framboð í Reykjavík fagnar því að horfur virðast á að bandarísk hernaðaryfirvöld sjái ekki lengur tilgang með að hafa menn gráa fyrir járnum á Íslandi og hafi vilja til að kalla hermenn sína héðan á brott. Enda tími til kominn að hernámsliðið haldi héðan eftir um sex áratuga hersetu og hreinsi upp eftir sig þann óþrifnað, svo sem sprengjur, mengandi úrgang og hernaðarmannvirki, sem því hefur fylgt. Að sama skapi er leitt til þess að vita að stjórnmálamenn allra flokka, utan Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, skuli ganga um torg barmandi sér yfir að herinn sé á förum og sjái ekki aðrar leiðir færar fyrir vinnuafl á Suðurnesjum en að þjónusta bandarískt hernámslið og klæði málflutning sinn með þeim fáránlegu rökum að öryggi Íslendinga sé best borgið með hersetu.
Viðkomandi stjórnmálamenn ættu að snúa sér að því brýna verkefni að skapa atvinnutækifæri fyrir það fólk sem mun óhjákvæmilega missa lifibrauð sitt þegar til þess kemur að bandarískur her fer af landi brott í stað þess að bíða og vona að við verðum um aldur og æfi háð hermangi. Með því að uppfylla þær skyldur sínar eru hagsmunir Suðurnesjamanna, jafnt sem annarra Íslendinga, best tryggðir."
9. júlí 2003
Stjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík.

