Veikleiki utanríkisráðherra
"Finnst utanríkisráðherra Íslands ekki einu sinni umræðuvert að æðstu yfirmenn mannúðarhjálpar Sameinuðu þjóðanna, þeir Denis Halliday og Hans von Sponeck, skuli hafa sagt af sér til að mótmæla þjóðarmorði í Írak sem Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, með stuðningi íslensku ríkisstjórnarinnar, var ábyrgt fyrir? Þarf ekki alla vega að ræða þetta? Á það endalaust að ganga að íslenskir ráðamenn skjóti sér undan ábyrgð og hvítþvoi hendur sínar á þann hátt sem utanríkisráðherra leyfir sér jafnan að gera?", segir Ögmundur Jónasson m.a. í grein sinni "Veikleiki utanríkisráðherra" sem birt er í greinahólfi.

