Fréttir

Landsfundur VG í Hveragerði 7.-9. nóvember

4.9.2003

Nú er allt starf í flokknum komið á fullan skrið eftir gott og gjöfult sumar. Félagar hafa reyndar starfað og ferðast og skemmt sér saman á ýmsa lund síðustu vikur, en nú tekur alvaran við og ekki síst undirbúningur undir þriðja landsfund flokksins sem haldinn verður í nóvember. Svæðisfélög og kjördæmisráð um allt land eru farin að huga að fundum til að velja fulltrúa sína á landsfundinn og sinna öðrum undirbúningi.

Landsfundur VG verður haldinn dagana 7. ? 9. nóvember nk., en skv. lögum flokksins er landsfundur haldinn annað hvert ár. Eins og menn muna var stofnfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í febrúar árið 1999 og fyrsti landsfundurinn þá um haustið á Akureyri. Árið 2001 var svo landsfundur í Reykjavík, en í ár verður hann haldinn á Hótel Örk í Hveragerði. Búist er við á þriðja hundrað kjörnum fulltrúum og mörgum gestum að auki. Undirbúningshópur hefur starfað um nokkurra vikna skeið og málefnanefndir eru að hefja störf. Meginþema fundarins snýst um hinar ýmsu myndir hnattvæðingar, en dagskrá verður kynnt þegar nær dregur fundinum.

Guðný Dóra Gestsdóttir er nýkomin til starfa hjá flokknum og mun fyrst og fremst sinna undirbúningi landsfundar. Starfsmaður auk hennar og undirritaðrar er svo Huginn Freyr Þorsteinsson.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica