Uppgjör VG vegna kosningabaráttunnar
Vinstrihreyfingin ? grænt framboð birti niðurstöðu bráðabirgðauppgjörs vegna kosningabaráttunnar 2003 opinberlega í júní sl. Endanleg niðurstaða var síðan kynnt á fundi flokksráðs 15. ? 16. ágúst sl.
Í kostnaðaráætlun vegna alþingiskosninganna í vor var gert ráð fyrir að Vinstrihreyfingin ? grænt framboð verði 15.5 milljónum króna til kosningabaráttu sinnar og styrkti auk þess kjördæmisfélögin um jafnháa upphæð.
Niðurstaða uppgjörs vegna kosninganna er sem hér segir 15. ágúst 2003:
Auglýsingar 6.755.209
Hönnun 2.751.450
Kynningarmyndband 1.489.611
Prentað efni 2.853.753
Póstburðargjöld/dreifing 1.011.958
Fundir, ferðakostnaður o.þ.h. 545.268
Starfsfólk í sérverkefni 569.362
Annar kostnaður 1.213.686
Samtals: 17.190.297
Þess ber að geta að enn er óuppgert vegna happdrættisvinninga og gæti það numið nær 200 þús. kr. Það er því ljóst að kostnaður Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs vegna alþingiskosninganna í vor fór rúmlega 1.5 millj. kr. fram úr áætlun. Svo ánægjulega vill þó til að tekjuöflun fór einnig fram úr áætlun um hartnær sömu upphæð þannig að dæmið er nokkurn veginn á sléttu.
Ofangreind útgjöld hefur flokkurinn fjármagnað með eftirfarandi hætti:
1) Lagt til hliðar af rekstrarfé undanfarin 4 ár.
2) Rekið styrktarmannakerfi meðal félaga og velunnara.
3) Leitað eftir fjárframlögum hjá fyrirtækjum.
Það sem á vantar verður fjármagnað með bankaláni sem greitt verður á næstu 2 árum.
Eins og fram er komið varði flokkurinn einnig 15.5 millj. kr. til að styrkja kosningabaráttuna í kjördæmunum. Kjördæmisfélögin lögðu eigið fé á móti framlagi flokksins vegna kostnaðar við kjördæmabundin verkefni. Endanlegt uppgjör kjördæmisfélaganna liggur ekki enn fyrir.
Til flokksráðsfundar
15. ágúst 2003
Kristín Halldórsdóttir framkvæmdastjóri

