Ályktun um landbúnaðarmál
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hefur að undanförnu haft vanda landbúnaðarins til sérstakrar skoðunar. Þingflokkurinn hefur fengið til sín fulltrúa frá bændasamtökunum og þingmenn hafa heimsótt bændur og afurðastöðvar og kynnt sér stöðu mála með ýmsum hætti. Þingflokkurinn hefur á fundi sínum í dag samþykkt svohljóðandi ályktun:
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs telur óhjákvæmilegt að grípa þegar á þessu hausti til aðgerða til að verja kjör sauðfjárbænda. Markmið slíkra aðgerða á að vera að koma í veg fyrir að afkoma sauðfjárbænda versni enn og forsendur skapist til að snúa vörn í sókn í kjaramálum bænda. Má í því sambandi minna á að framundan eru kjarasamningar á vinnumarkaði þar sem samtök launamanna hyggjast berjast fyrir bættum kjörum umbjóðenda sinna. Í aðdraganda þess geta stjórnvöld ekki horft aðgerðalaus á eina lægst launuðu stétt landsins verða fyrir tuga prósenta kjaraskerðingu. Að óbreyttu stefnir í að tekjur sauðfjárræktarinnar í heild lækki um 250 - 300 milljónir króna vegna verðlækkunar hjá afurðastöðvum og aukinnar útflutningsskyldu. Bændur hafa ekkert borð fyrir báru til að taka slíka tekjuskerðingu á sig. Nátengdur vanda sauðfjárræktarinnar er vandi þeirra bænda sem hafa tekjur af framleiðslu nautakjöts, en báðar greinarnar gjalda fyrir upplausnarástand á sviði afurðastöðva og kjötmarkaðar hér á landi og þá óheilbrigðu viðskiptahætti sem þar tíðkast. Í kjúklinga- og svínarækt eru sjálfstæðir framleiðendur, sem ekki er haldið gangandi af fjármálafyrirtækjum, óðum að týna tölunni. Stjórnvöld geta ekki látið sem þeim komi þessi vandi ekki við, hvorki gagnvart því sem lýtur að kjörum bænda né hinu sem varðar viðskiptahætti á kjötmarkaði.
Loðdýraræktin kallar einnig eftir aðgerðum stjórnvalda til að hún fái notið sambærilegra rekstrarskilyrða og atvinnugreinin gerir í nágrannalöndunum, einkum hvað varðar aðgang að hráefni til fóðurgerðar og flutningskostnað. Óhagstæð gengisþróun að undanförnu gerir það að verkum að greinin þarf nauðsynlega á sambærilegu rekstrarumhverfi að halda eigi hún að lifa af. Í því sambandi er mikilvægt að hafa í huga að loðdýraræktin breytir þúsundum tonna af lífrænum úrgangi í útflutningsverðmæti, úrgangi sem annars er fargað með ærnum tilkostnaði.
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs telur að skipta beri aðgerðum nú í tvennt; það er annars vegar bráðaaðgerðir sem hafi það að markmiði að verja bændur fyrir frekara tekjufalli. Hins vegar ber brýna nauðsyn til að móta framtíðarstefnu í málefnum landbúnaðarins. Landbúnaðarstefnan verður að fela í sér möguleika á að kjör bænda geti batnað á komandi árum og byggð í sveitum styrkst. Vinstrihreyfingin - grænt framboð hefur mótað stefnu um að taka beri upp búsetutengdan grunnstuðning sem hluta af stuðningi við landbúnað og búsetu í sveitum. Miðað yrði við heilsársbúsetu í sveitum og tiltekna skilgreinda landbúnaðarstarfsemi eða landbúnaðartengd atvinnuumsvif. Slíkt stoðkerfi við landbúnað og búsetu í strjálbýli opnar á fjölbreyttari þróunarmöguleika en nú er, kemur á meira jafnræði milli greina, er líklegra til að standast alþjóðasamninga á viðkomandi sviði og er laust við ýmsa ókosti sem núverandi fyrirkomulag hefur t.d. hvað varðar ættliðaskipti eða endurnýjun í greininni. Þingflokkurinn skorar á ríkisstjórnina að undirbúa án tafar aðgerðir til lausnar bráðavanda landbúnaðarins. Liggi tillögur um slíkt ekki fyrir þegar þing kemur saman í októberbyrjun mun þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs taka málið upp á Alþingi.

