Fréttir

Um kjör starfsmanna við Kárahnjúkavirkjun

9.9.2003

Á fundi þingflokks VG í dag, þriðjudaginn 9. september, var ályktað eftirfarandi:

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs lýsir eindregnum stuðningi við baráttu Alþýðusambands Íslands fyrir því að kjarasamningar séu virtir við framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun, að farið sé að öryggisreglum í hvívetna og aðbúnaður verkamanna bættur í samræmi við kröfur verkalýðshreyfingarinnar.

Undir engum kringumstæðum ber að líða að verkatakafyrirtæki, hvort sem þau eru erlend eða innlend, virði ekki kjarasamninga og leikreglur á íslenskum vinnumarkaði. Félagsmálaráðuneytið hefur eftirlitshlutverki að gegna gagnvart málefnum vinnumarkaðar og  ber félagsmálaráðherra og ríkisstjórn að axla ábyrgð á því að ekki sé brotið á réttindum launafólks. Jafnramt ber að tryggja með löggjöf að verkalýðshreyfingin hafi jafnan  innsýn  í ráðningarkjör svo hún geti beitt eftirfylgni ef þörf krefur.     

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica