Ráðherrafundur WTO í Cancún
Á fundi þingflokks VG í dag, þriðjudaginn 9. september, var m.a. fjallað um efni viðræðna á fundi viðskiptaráðherra aðildarlanda Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) á fundinum í Cancún í Mexíkó. Samþykkt var eftirfarandi ályktun:
Á morgun, miðvikudaginn 10. september, hefst ráðherrafundur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) í Cancún í Mexíkó. Markmið WTO er að draga úr viðskiptahömlum landa á milli og verða á fundinum m.a. til umfjöllunar málefni landbúnaðar og einkavæðing opinberrar þjónustu. Ljóst er að miklir hagsmunir eru í húfi og er mikilvægt að vönduð og lýðræðisleg umræða fari fram um afstöðu Íslands. Sú umræða hefur hvorki farið fram á Alþingi né að nægilegu marki í samfélaginu almennt og hyggst Vinstrihreyfingin ? grænt framboð beita sér fyrir opinni umræðu um samninga Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar um landbúnaðarmál og aðra þætti.
Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar ? grænt framboðs hvetur íslensku sendinefndina í Cancún til þess að standa vörð um hagsmuni almennings og beita sér af alefli gegn tilraunum til að markaðsvæða almannaþjónustu. Þá leggur þingflokkurinn áherslu á að Ísland styðji af einurð baráttu hinnar alþjóðlegu verkalýðshreyfingar fyrir því að tengja samningaferlið skuldbindingum sem lúta að mannréttindum og rétti verkalýðsfélaga til að standa vörð um kjör launafólks.
Síðast en ekki síst skal lögð á það áhersla að alþjóða viðskiptasamningar verða að taka sanngjarnt tillit til stöðu þróunarríkjanna með hagsmuni íbúa þeirra ríkja í fyrirrúmi fremur en stórfyrirtækja á Vesturlöndum.

