Landsfundur Ungra vinstri grænna
Ung vinstri græn halda landsfund sinn laugardaginn 20. september nk. Fundurinn hefst með móttöku í Alþingishúsinu klukkan 20:30 föstudaginn 19. september. Mæting er fyrir utan skála Alþingishússins stundvíslega klukkan 20:20. Þingmenn flokksins taka á móti ungliðunum og leiða þá í allan sannleika um þingstörfin sem bíða þeirra í framtíðinni. Eftir mótttökuna mun stjórn UVG leiða félagsmenn um næturlíf Reykjavíkur.
Landsfundur verður formlega settur klukkan 10:00 laugardaginn 20. september í Þingsal 1 á Hótel Loftleiðum. Dagskrá hans er sem hér segir:
10:00 Setning
10:05 Almennar stjórnamálaumræður. Katrín Jakobsdóttir, formaður UVG, fylgir pólitískum ályktunum úr hlaði.
12:00 Hádegisverður.
13:00 Hópastarf um ályktanir.
15:00 Gengið til samþykkta um ályktanir.
16:00 Stjórnarkjör.
16:15 Kjör vefstjórnar.
16:30 Núverandi formaður UVG, Katrín Jakobsdóttir, ávarpar fundinn.
17:00 Fundi slitið.
Kaffigjald fyrir daginn er kr. 300.
Um kvöldið verður snæddur kvöldverður á Tapas-barnum og kostar glæsileg máltíð kr. 1800.
Rétt til að sitja fundinn eiga allir félagar í UVG, þ.e. félagar í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði, sem eru undir þrítugu.
Fyrir stjórnarkjör starfar uppstillingarnefnd sem tekur mið af þeim tilnefningum og framboðum sem bárust fyrir 8. september en óskað var eftir þeim í tölvupósti. Fólki er ennfremur frjálst að bjóða sig fram á fundinum.
Félagsmenn eru beðnir um að tilkynna þátttöku sína á netfangið uvg@uvg.vg eða á netföngin katrinja@hi.is og huginn@hi.is. Þá er einnig hægt að hringja í okkur, Katrínu Jakobsdóttur í síma 895-6052, og Hugin Frey Þorsteinsson í síma 821-3434.
Félögum sem eru búsettir utan höfuðborgarsvæðisins er bent á að tala við Hugin um ferðir til og frá borginni.
Sjáumst sem flest í baráttuhug.

