Fréttir

Ályktun VG á Héraði og nágrenni

26.9.2003

Á aðalfundi Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs á Héraði, Borgarfirði eystri og Seyðisfirði, sem haldinn var í Blöndalsbúð 20. september 2003 var samþykkt eftirfarandi ályktun:

Aðalfundur Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs á Héraði, Borgarfirði eystra og Seyðisfirði lýsir yfir fullum stuðningi við verkalýðshreyfinguna í baráttu hennar fyrir erlenda verkamenn Impregilo við Kárahnjúka. Vinnist þar ekki fullur sigur gæti það orðið íslensku verka- og iðnaðarfólki dýrt spaug þegar kemur að stórframkvæmdum hérlendis í framtíðinni.

Þá lætur fundurinn í ljós áhyggjur af því hvernig auður og völd í landinu hafa safnast á hendur fárra manna að undanförnu og telur að slíkt geti leitt til aukinnar spennu í samfélaginu og sé lýðræðinu ekki til framdráttar. Fundurinn styður eindregið þá ætlan þingmanna VG að leggja fram frumvarp um bankastarfsemi á Alþingi í haust.

Sameining eða stofnun nýrra sveitarfélaga er orðn brýn nauðsyn. Bæði til að bæta og efla þá starfsemi sem þeim ber lagaskylda til að gegna, sem og til að geta tekið að sér ný verkefni til að auka atvinnu og fjölbreytni í heimabyggð. Allar tafir og hindranir sem verða á stækkun og eflingu sveitarfélaga koma verst niður á íbúunum sjálfum og atvinnustarfsemi á viðkomandi svæðum. Samningar og ákvörðun um stækkun þeirra á þó að vera í höndum heimafólks. Það á ekki að gera með valdboði.

Vandamál landbúnaðarins, einkum sauðfjárbænda, verður að leysa á einhvern þann nýjan hátt að sem flestir geti við unað. Það er ekki einfalt en ætti að geta tekist ef vilji allra stendur til þess. Mætti minna á hugmyndir sem Steingrímur J. Sigfússon birti m. a. í Bændablaðinu sl vor. og geta verið innlegg í þessa umræðu.

Loks skorar fundurinn á valdhafa að standa að fullu við gróðuráætlun sem samþykkt var á síðasta vorþingi. Hér er um hagsmunamál að ræða sem margir gætu átt aðild að.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica