Fréttir

Aðalfundur VG í Norðausturkjördæmi

14.10.2003

Um helgina fór fram aðalfundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðausturkjördæmi. Fundurinn var fjörugur og margir sem gáfu kost á sér í stjórn kjördæmisráðsins. Kosningin fór þannig að hina nýju stjórn skipa Valgerður Jónsdóttir formaður, Helga Erlingsdóttir, Gunnar Ólafsson, Björgvin R. Leifsson, Magnús Stefánsson, Jón Erlendsson og Bjarkey Gunnarsdóttir. Í varastjórn eru Ragnar Stefánsson, Andrea Hjálmsdóttir, Anna Helgadóttir og Gunnar Pálsson. Fundurinn samþykkti nokkrar ályktanir og birtast þær hér að neðan:

 

Ályktun um samþjöppun í sjávarútvegi og vanda minni sjávarbyggða

 

Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs í Norðausturkjördæmi vekur athygli á því öryggisleysi sem samþjöppun í sjávarútvegi og barátta um völd og yfirráð yfir fyrirtækjum á markaði veldur íbúum sjávarbyggða meðan notast er við óbreytt fiskveiðistjórnunarkerfi. Frjálst framsal veiðiheimilda í kvótakerfi án nokkurrar byggðatengingar hefur reynst minni sjávarbyggðum sérstaklega þungt í skauti. Nú bætist það við að barátta um völd og yfirráð í stórfyrirtækjunum, sem sankað hafa að sér veiðiheimildum skapar óvissu og öryggisleysi meðal íbúa viðkomandi byggðarlaga. Þar eru menn nú að vakna upp við vondan draum og sjá fram á að örlög þeirra ráðast af sviptingum og niðurstöðu valdatafls eigenda á fjarlægum slóðum. Víða eru komnar af stað umræður um að kaupa til baka inn í byggðarlögin forræði yfir fyrirtækjunum og reyna þannig að tryggja aðgang að auðlindinni og atvinnuöryggi heimamanna.  Fundurinn minnir á stefnu Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs um byggðatengingu veiðiréttinda og hvetur til umræðna um sjávarútvegsmál í byggðum landsins sem hafi það að markmiði að skapa samstöðu meðal íbúa sjávarbyggðanna um að hagsmunir þeirra séu settir í öndvegi og ofar þröngum hagsmunum fjármagnseigenda.

 

Ályktun um niðurskurð og boðaðar uppsagnir á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri

 

Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs í Norðausturkjördæmi lýsir þungum áhyggjum yfir boðuðum niðurskurði og uppsögnum á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Þvert á móti er nauðsynlegt að FSA sé eflt sem móðurskip sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Nýta ber kosti Fjórðungssjúkrahússins til að byggja upp menntun á sviði lækninga og heilbrigðisþjónustu í strjálbýli, efla ber hlutverk þess og Akureyrar sem miðstöð sjúkraflugs, sem varasjúkrahúss o.s.frv. Boðaður niðurskurður er í hróplegu ósamræmi við fyrri yfirlýsingar ráðamanna á sviði heilbrigðismála svo ekki sé talað um áherslur sem í orði kveðnu eiga að heita við lýði í byggðamálum.

 

Ályktun um vanda landbúnaðarins og aðgerðir til stuðnings sauðfjárbúskap og loðdýrarækt

 

Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs í Norðausturkjördæmi krefst þess að tafarlaust verði gripið til aðgerða til stuðnings bændum og þeim greinum landbúnaðarins sem nú eiga í mestum erfiðleikum, einkum sauðfjárbúskap og loðdýrarækt. Markmið með bráðaaðgerðum þegar á þessu hausti á að vera að verja bændur og fjölskyldur þeirra fyrir frekari kjaraskerðingu sem blasir við verði ekkert að gert. Í beinu framhaldi af slíkum fyrstu aðgerðum þarf að leggja grunn að nýrri landbúnaðarstefnu sem treystir byggð og bætir kjör fólks í sveitum landsins. Fundurinn vísar í því sambandi í stefnu Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs um búsetutengdan grunnstuðning og tekur undir ályktun þingflokks Vg frá 3. september sl.

 

Ályktun um kjör og aðbúnað verkamanna við Kárahnjúkavirkjun

 

Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs í Norðausturkjördæmi gagnrýnir harðlega sinnuleysi ríkisstjórnarinnar hvað varðar kjör og aðbúnað verkamanna við Kárahnjúka. Með ólíkindum er að heyra ráðherra í ríkisstjórn landsins verja framferði ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo, eða jafnvel flytja því þakkarræður eins og utanríkisráðherra gerði á dögunum. Þá virðist einnig þurfa að minna félagsmálaráðuneytið á að það fer með eftirlitshlutverk í málum af þessu tagi og að undir ráðuneytið heyra réttindamál launamanna. Tilraunir félagsmálaráðherra til að veita Impregilo syndakvittun þar sem ekki hefðu sannast lögbrot á fyrirtækið eru brjóstumkennanlegar í ljósi allra þeirra upplýsinga sem hafa hrannast upp um hneykslanlegan aðbúnað hinna erlendu verkamanna og ósvífnar tilraunir til að hunsa kjarasamninga.

 

Fundurinn lýsir eindregnum stuðningi við baráttu verkalýðshreyfingarinnar fyrir því að íslenskir kjarasamningar, lög og reglur séu virt á virkjunarsvæðum jafnt sem annars staðar og eins þótt í hlut eigi erlendir farandverkamenn. Í húfi eru réttindi sem verkalýðshreyfingin á Íslandi hefur barist fyrir áratugum saman. Hinu erlenda verktakafyrirtæki, þótt ósvífið sé og undir verndarvæng ríkisstjórnarinnar og Landsvirkjunar, má ekki líðast að stunda gróf félagsleg undirboð og brjóta mannréttindi frammi fyrir augum alþjóðar. Fundurinn skorar á þau aðildarfélög ASÍ sem hlut eiga að máli að beita öllum tiltækum ráðum til að verja kjör, réttindi og aðbúnað verkafólks á Kárahnjúkasvæðinu.

 

Hvetjum til umræðu um gildi samvinnurekstrar

 

Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingingarinnar - græns framboðs í Norðausturkjördæmi hvetur félagsmenn og allan almenning til umræðu um gildi samvinnurekstrar og félagslegra lausna í atvinnu- og hagsmunamálum byggðalaga. Víða í nágrannalöndum okkar er  samvinnurekstur mikilvæg kjölfesta, til dæmis í verslun og hefur orðið aukning á. Það er því síður en svo sjálfgefið að þróunin þurfi að verða sú hér á landi að samvinnurekstur leggist meira og minna af. Samvinnurekstur er form sem getur komið íbúunum öllum til góða.

 

Ályktun um uppbyggingu iðnaðar á Húsavík og nærsveitum.

 

Aðalfundur kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðausturkjördæmi skorar á bæjarstjórn Húsavíkur og sveitarstjórnir nærliggjandi sveitarfélaga að beita sér fyrir að orka frá Þeistareykjum verði nýtt til uppbyggingar vistvænna atvinnugreina á svæðinu.  Má þar nefna lífrænan efnaiðnað, nýtingu kornafurða, ylrækt og eldi hlýsjávartegunda, auk framleiðslu á eldsneyti, matvælum, lyfjum,próteinum og ensímum.  Þessir möguleikar mundu skapa ný störf í hátækni og vísindum á Húsavík og nágrenni og laða þannig ungt, menntað fólk til starfa á svæðinu.

 

 

 

 

 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica