Fréttir

Landsfundur VG 7. - 9. nóvember

22.10.2003

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs verður haldinn á Hótel Örk í Hveragerði 7. ? 9. nóvember 2003. Flest félögin eru þegar búin að kjósa fulltrúa og kjörbréfin streyma til skrifstofu flokksins, en rétt er að minna á að þau þurfa að hafa borist eigi síðar en 14 dögum fyrir landsfund. Þá eru einnig farnar að berast pantanir í gistingu á Hótel Örk enda best fyrir alla aðila að ganga sem fyrst frá því. Rétt er að benda á að pantanir á gistingu eru á vegum flokksskrifstofu og eiga menn því ekki að hringja beint á hótelið.

 

Landsfundarfulltrúum sem þurfa að fljúga er bent á að hafa samband við flokksskrifstofu. Þeim sem koma akandi langt að er bent á að reyna að sameinast í bíla. Þeim sem óska eftir fari og þeim sem hafa laus sæti er bent á að hafa samband við Guðnýju Dóru s. 863 0685 eða Huginn s. 821 3434 eða senda tölvupóst á kristin@vg.is .

 

Undirbúningur fyrir landsfund er á fullri ferð. Málefnahópar vinna að drögum ályktana og skipulagi málefnahópa á landsfundinum. Dagskráin er að taka á sig endanlega mynd og ætti að vekja áhuga flestra. M.a. má nefna að gestur fundarins verður Stellan Hermansson, framkvæmdastjóri vinstri grænu flokkanna hjá Evrópusambandinu. Hann mun flytja erindi um ýmsar hliðar Evrópumálanna, stöðuna eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna í Svíþjóð þar sem hafnað var að taka upp evruna sem gjaldmiðil og almennt um horfurnar í þróun Evrópusamstarfsins. Efnt er til pallborðsumræðna um þema fundarins þar sem margir góðir gestir leggja sitt lóð á vogarskálarnar.  Og ekki má gleyma landsfundarfagnaðinum á laugardagskvöldið.

 

Allar frekari upplýsingar um skráningu, verð og annað veitir Guðný Dóra s. 552 8872 / 863 0685 netfang: kristin@vg.is

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica