Fréttir

Fréttir af fundum svæðisfélaga

24.10.2003

Sífellt berast fréttir af svæðisfélögum VG sem halda nú fundi sína hvert af öðru, skipta um stjórnarmenn og kjósa fulltrúa á landsfundinn í Hveragerði sem óðum nálgast. Eitt nýtt svæðisfélag var stofnað á dögunum, svæðisfélag VG á Mið-Suðurlandi.

 

Vesturland

Svæðisfélag Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs á Vesturlandi nær yfir fyrrum Vesturlandskjördæmi að undanskildu Akranesi og nágrenni. Svæðisfélagið hélt aðalfund sinn í mars sl. og þar með líklega hið fyrsta til að kjósa fulltrúa á landsfundinn. Í stjórn voru kosin Hildur Traustadóttir, Jóhannes Ragnarsson og Matthildur S. Guðmundsdóttir og til vara Kristberg Jónsson, Ólafur Guðmundsson og Sigurður Helgason. Stjórnin skipti með sér verkum þannig að Matthildur er formaður, Jóhannes ritari og Hildur gjaldkeri.

 

Hafnarfjörður

Aðalfundur VG í Hafnarfirði var haldinn föstudaginn 17. október. Á fundinum var kosin ný stjórn félagsins. Í stjórn voru kjörnir: Formaður Gestur Svavarsson, meðstjórnendur Árni Stefán Jónsson og Sigurður Magnússon. Til vara voru kjörin Hallgrímur Hallgrímsson og Dögg Hugosdóttir. Gestur fundarins var Kolbrún Halldórsdóttir.

 

Mosfellsbær

Aðalfundur VG í Mosfellsbæ var haldinn 14. október. Stjórn félagsins var endurkjörin, en hana skipa Ólafur Gunnarsson, formaður, og meðstjórnendur Bjarki Bjarnason og Jóhanna B. Magnúsdóttir. Gestur fundarins var Ögmundur Jónasson.

 

Nýtt svæðisfélag

Eitt nýtt svæðisfélag var stofnað á dögunum, svæðisfélag VG á Mið-Suðurlandi, þ.e. Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu. Stjórn félagsins skipa Kristján Guðmundsson, Lambalæk, formaður, Hilmar Gunnarsson, Kirkjubæjarklaustri, gjaldkeri og  Arndís Soffía Sigurðardóttir, Smáratúni, ritari, og til vara Jónína Sólborg Þórisdóttir í Vík og Haraldur Gísli Kristjánsson, Hólum. Þuríður Backman var gestur fundarins.

 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica