Fréttir

Breytingartillögur við lög VG

31.10.2003

Borist hafa þrjár tillögur um breytingar á lögum VG til umfjöllunar og afgreiðslu á landsfundi.

 

Breytingartillaga 1:

 

26. grein orðist svo:

"Flokksráð mynda aðal- og varamenn í flokksstjórn, þingmenn flokksins, formenn kjördæmisráða, formaður ungliðahreyfingar flokksins og 30 fulltrúar sem kosnir eru sérstaklega af landsfundi. Varaformaður flokksstjórnar er jafnframt formaður flokksráðs."

 

2. mgr. 28. greinar orðist svo: "Flokksráðsfundi skal halda eigi sjaldnar en tvisvar á ári."

 Við 28. grein bætist ný málsgrein sem hljóðar svo: "Óski helmingur fulltrúa í flokksráði eftir fundi skal hann boðaður svo fljótt sem verða má og eigi síðar en innan þriggja vikna frá því að skrifleg beiðni þar um er send formanni flokksráðs."

 

Steinþór Heiðarsson

 

Breytingartillaga 2:

 

25. grein orðist svo:

Flokksstjórn stjórnar daglegri starfsemi flokksins í samræmi við lög þessi og samþykktir landsfunda.
Flokksstjórn skal kosin á landsfundi. Formaður, varaformaður, ritari og gjaldkeri skulu kosnir sérstaklega og að auki skulu kosnir sjö meðstjórnendur. Þessir ellefu mynda flokksstjórn VG. Auk þess skal kjósa fjóra varamenn.
Flokksstjórn starfar einnig sem framkvæmdastjórn. Skal hún kjósa sér verkstjóra, formann framkvæmdastjórnar, úr hópi meðstjórnenda.
Einnig skal kjósa tvo skoðunarmenn reikninga og einn til vara.

 

Ármann Jakobsson og Huginn Freyr Þorsteinsson

 

Breytingartillaga 3:

 

Við kafla III um skipulag bætist ný grein sem verður 13. grein og hljóðar svo:

"Landssamtök ungs fólks í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði hafa sjálfstæðan fjárhag og setja sér lög sem eru í samræmi við lög flokksins. Allir flokksfélagar yngri en 31 árs eru sjálfkrafa félagsmenn í ungliðahreyfingu flokksins."

 

Katrín Jakobsdóttir og Oddur Ástráðsson

 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica