Fréttir

Upplýsingar um landsfundinn

31.10.2003

Undirbúningur fyrir landsfund VG sem haldinn verður á Hótel Örk í Hveragerði 7. ? 9. nóvember næstkomandi hefur gengið með ágætum og er óhætt að reikna með skemmtilegum og gagnlegum fundi. Búið er að ganga frá kjöri fulltrúa í nær öllum svæðisfélögum og senda þeim helstu fundargögn og eru þau birt hér á vefnum. Rétt er að minna á að landsfundurinn er opinn öllum félagsmönnum í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði og má t.d. búast við að margir komi á setningarathöfnina á föstudaginn.

Gisting
Skráningar í gistingu þurfa að berast flokksskrifstofu sem allra fyrst og í síðasta lagi 3. nóvember. Hægt er að senda skráningar með tölvupósti á netfangið kristin@vg.iseða með því að hringja í síma 552 8872 eða 863 0685.

Upplýsingar um verð:
Skráningargjald landsfundarfulltrúa er 5000 kr. Innifalið í því verði eru máltíðir og öll aðstaða á staðnum meðan á fundi stendur frá föstudegi til sunnudags. Landsfundarfulltrúar sem gista í tveggja manna herbergi á Hótel Örk greiða 12000 kr., en í eins manns herbergi 16000 og er bæði gisting í 2 nætur og fyrrgreint skráningargjald. innifalið í því verði. Rétt er að undirstrika að skráningargjaldið er innifalið í uppgefnu gistingarverði því borið hefur á þeim misskilningi að skráningargjaldið leggist þar ofan á.    

Ungt fólk 20 ára og yngra, aldraðir og öryrkjar fá sérstakan afslátt. Frekari upplýsingar um skráningu veitir Guðný Dóra s. 552 8872 / 863 0685 netfang: kristin@vg.is

Ferðir
Landsfundarfulltrúum sem koma langt að er bent á að sameinast í bíla ef mögulegt er. Þeir sem óska eftir fari og þeir sem geta tekið farþega eru beðnir um að hafa samband við Guðnýju Dóru s. 863 0685 eða Huginn s. 821 3434 eða senda tölvupóst á kristin@vg.isFlokkurinn mun veita þeim bensínstyrk sem koma langt að.

Rúta
Áætlunarferðir með Austurleið eru oft á dag milli Reykjavíkur og Hveragerðis. Farið er frá BSÍ og stansað við Hótel Örk. Upplýsingar um áætlun eru á  www.austurleid.isog í síma 545 1717. Farið kostar 650 kr.

Flug
Landsfundarfulltrúum sem þurfa að fljúga er bent á að hringja í Kristínu s. 563 0771 eða senda tölvupóst á kristin@vg.is.

Landsfundarfagnaður
verður á laugardagskvöld á Hótel Örk og er selt inn á hann sérstaklega, kr. 3500. Þríréttuð máltíð, skemmtiatriði og dansleikur, skemmtun sem enginn má missa af. Landsfundarfulltrúar eru hvattir til að koma og taka með sér gesti.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica