Málefnahópar á landsfundi
Laugardaginn 8. nóvember kl. 15:00 ? 18:00 taka málefnahópar til starfa um hin margvíslegustu efni. Sérstakur hópur mun fjalla um ályktanir landsfundarins, annar um innra starf flokksins og áherslur, þriðji um lagabreytingar og þá verður væntanlega uppstillinganefnd að störfum. Auk þessa munu eftirtaldir hópar starfa:
1. Hver á að stjórna heimsþorpinu? Lýðræði í hnattvæddum heimi.
Hópstjóri: Steinþór Heiðarsson sagnfræðingur
2. Hvað ætlum við börnum okkur? Sjálfbær atvinnustefna.
Hópstjóri: Ársæll Guðmundsson sveitarstjóri
3. Menntun til sölu?
Hópstjóri: Katrín Jakobsdóttir íslenskufræðingur
4. Ertu tryggður? Hver er réttur fólks til velferðar?
Hópstjóri: Hervör Alma Árnadóttir félagsráðgjafi
5. Suðurnes án hers.
Hópstjóri: Hlynur Hallsson myndlistarmaður
6. Jafnrétti sem aldrei fyrr.
Hópstjóri: Atli Gíslason lögmaður
7. Frá Hnitbjörgum til Hafnarhússins. Á menning að vera forréttindi fárra
eða eðlilegur þáttur lífsins?
Hópstjóri: Sigursteinn Másson formaður Geðhjálpar
8. Hver á sér fegra föðurland og hversu lengi?
Hópstjóri: Drífa Snædal viðskiptafræðingur

