Fréttir

Pallborð um þema landsfundar

5.11.2003

Laugardaginn 8. nóvember er efnt til pallborðsumræðna um þema landsfundarinn "Réttlæti án landamæra". Þátttakendur pallborðsins munu leitast við að varpa ljósi á yfirskrift landsfundarinn og ræða um baráttu fyrir réttlæti í víðum skilningi. Ljóst er að barátta samtaka og einstaklinga er í æ meira mæli í alþjóðlegu samhengi þar sem heimurinn er sífellt að þróast meira sem ein heild.

 

Stjórnandi pallborðsins verður Álfheiður Ingadóttir varaþingmaður VG. Þátttakendur pallborðsins koma úr ýmsum geirum þjóðfélagsins og eru eftirtaldir: 

 

Andri Snær Magnason rithöfundur, Bjarni Jónsson líffræðingur, Einar Skúlason framkvæmdastjóri Alþjóðahússins, Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur, Skúli Thoroddsen lögfræðingur Starfsgreinasambands Íslands, Tatjana Latinovic formaður Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi.   

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica