Sérstakir gestir landsfundar
Sérstakir gestir landsfundar Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs eru að þessu sinni tveir:
Tórbjörn Jacobsen
Færeyski stjórnmálamaðurinn Tórbjörn Jacobsen verður annar af tveimur erlendum gestum á landsfundi Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs. Tórbjörn kemur sem fulltrúi systurflokka VG í Vestnorrænu löndunum, þ.e. þjóðveldisflokksins Færeyska og Inuit Atagatigit í Grænlandi. Tórbjörn Jacobsen er fyrrverandi menntamálaráðherra Færeyja. Hann er þingmaður á færeyska lögþinginu og situr jafnframt á danska þinginu sem annar af tveimur fulltrúum Færeyinga. Á Fólkaþinginu situr Tórbjörn sem varamaður fyrir Högna Höjdal formann Þjóðveldisflokksins, ráðherra sjálfstæðismála og varalögmann í færeysku landsstjórninni. Tórbjörn er þekktur í Færeyjum fyrir að vera harður sjálfstæðissinni. Hann er mikill Íslandsvinur og t.d. sérstakur aðdáandi Bubba Morteins Hann mun ávarpa landsfundinn á laugardaginn.
Stellan Hermansson
Hinn gesturinn er Stellan Hermansson, framkvæmdastjóri Nordic-Green Left hópsins á Evrópuþinginu. Stellan er frá Svíþjóð og hefur lengi tekið þátt í stjórnmálum á vinstri væng sænskra stjórnmála. Hann hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir Vinstriflokkinn í Svíþjóð (Vänsterpartiet). Frá árinu 1999 hefur hann síðan verið einn af forsvarsmönnum vinstri-grænna afla á Evrópuþinginu og er nú framkvæmdastjóri þess hóps. Hann flytur erindi á landsfundinum á laugardaginn.
Nordic-Green Left eru öflug samtök vinstri- og umhverfisverndarsinnaðra þingmanna á Evrópuþinginu. Á mörgum sviðum hefur þessi hópur leitt gagnrýna umræðu um Evrópusambandið. Má í þessu samhengi nefna drög að stjórnarskrá sambandsins, en hörð andstaða hefur verið úr röðum vinstri-grænna á Evrópuþinginu við drögin. Nefna menn einkum fernt í aðfinnslum við stjórnarskrána: Hún yrði stórt skref í átt að sambandsríki og færði aukin völd til stærri þjóðanna og lög Evrópusambandsins yrðu æðri stjórnarskrám þjóðríkjanna. Þá gagnrýna menn áform um sameiginlegan her og það nýmæli að setja efnahagsskipan inn í stjórnarskrá.
Ásamt því að fara yfir helstu baráttumál þingmannahópsins á Evrópuþinginu þá mun hann gera grein fyrir baráttu Svía gegn upptöku Evrunnar. En eins og öllum er kunnugt þá kolfelldu Svíar evruna í þjóðaratkvæðagreiðslu í september sl., þrátt fyrir að sterk öfl í þjóðfélaginu hafi lagst á eitt við að sannfæra Svía um hið gangstæða. Í þessari baráttu voru róttæk vinstriöfl í forystu þeirra sem stóðu gegn evrunni.

