Fréttir

Nýkjörin stjórn Vinstri grænna

9.11.2003

Landsfundur VG um helgina einkenndist af miklum krafti og áhuga félaga á virkri þátttöku í starfi, ekki aðeins á fundinum sjálfum, heldur til framtíðar. Raunin varð að ekki komust allir að sem vildu og þurfti ítrekað að kjósa til stjórnarstarfa. Aðeins formaður, ritari og gjaldkeri hlutu einróma kosningu, en kjósa þurfti á milli manna til varaformanns og meðstjórnenda, bæði aðalmenn og varamenn. Mesta eftirvæntingin var í kringum kjör varaformanns og bjuggust margir við að mjórra yrði á mununum milli þeirra Katrínar Jakobsdóttur og Steingríms Ólafssonar en raun varð á. Niðurstaðan varð sú að atkvæði greiddu 151, Katrín fékk 119 atkvæði, Steingrímur Ólafsson 30, auðir og ógildir voru 2 .

Þegar kom að kjöri meðstjórnenda gerði uppstillinganefnd tillögu um eftirtalda, í stafrófsröð: Árna Steinar Jóhannsson, Árna Þór Sigurðsson, Guðmund Magnússon, Guðrúnu Jónsdóttur, Karólínu Einarsdóttur, Lilju Rafney Magnúsdóttur og Steinþór Heiðarsson, en síðan komu fram tillögur frá fundarmönnum um Hildi Traustadóttur og Þorvald Þorvaldsson. Niðurstaða kosninganna varð svohljóðandi: 142 greiddu atkvæði, Árni Steinar Jóhannsson hlaut 135 atkvæði, Guðmundur Magnússon 121, Lilja Rafney Magnúsdóttir 117, Guðrún Jónsdóttir 116, Steinþór Heiðarsson 115, Karólína Einarsdóttir 113, Árni Þór Sigurðsson 98, Hildur Traustadóttir 93 og Þorvaldur Þorvaldsson 53. Ógildir seðlar voru 3 og 1 auður.

Uppstillinganefnd lagði til eftirtalda í varastjórn: Birnu Þórðardóttur, Guðnýju Dóru Gestsdóttur, Ólaf Þór Gunnarsson og Þórunni Friðriksdóttur, en tillögur komu frá fundarmönnum um Önnu Tryggvadóttur, Kolbrúnu Valvesdóttur, Sigurberg Árnason og Sigurð Inga Andrésson. Niðurstaða kosninganna varð svohljóðandi: Atkvæði greiddu 122, Birna Þórðardóttir fékk 87 atkvæði, Ólafur Þór Gunnarsson 84, Guðný Dóra Gestsdóttir 75, Þórunn Friðriksdóttir 68, Anna Tryggvadóttir 51, Sigurður Ingi Andrésson 44, Kolbrún Valvesdóttir 30 og Sigurbergur Árnason 21. Þess ber að geta að varamenn hafa setið stjórnarfundi með réttindi og skyldur til jafns við aðalmenn.

Rétt er að geta þess að fundurinn dróst mjög á langinn vegna kosninganna og nokkrir fundarmanna urðu frá að hverfa til þess að ná flugi eða vegna annarra skuldbindinga þannig að heldur fækkaði eftir því sem á leið eins og sjá má af heildartölunum. Að stjórnarkjöri loknu fóru fram kosningar 30 manna í flokksráð, en talningu var frestað og verða úrslit birt svo fljótt sem verða má.

Nýkjörin stjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs er nú þannig skipuð:

Steingrímur J. Sigfússon formaður
Katrín Jakobsdóttir varaformaður
Drífa Snædal ritari
Tryggvi Friðjónsson gjaldkeri

Meðstjórnendur, aðalmenn:

Árni Steinar Jóhannsson
Guðmundur Magnússon
Lilja Rafney Magnúsdóttir
Guðrún Jónsdóttir
Steinþór Heiðarsson
Karólína Einarsdóttir
Árni Þór Sigurðsson

Varamenn:

Birna Þórðardóttir
Ólafur Þór Gunnarsson
Guðný Dóra Gestsdóttir
Þórunn Friðriksdóttir.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica