Réttlæti án landamæra - stjórnmálaályktun
Mikið starf var unnið í öllum málefnahópum á landsfundi VG og ályktað um fjölmörg mál. Sérstakur hópur var að störfum fyrir fundinn og gerði hann hvort tveggja að móta rammann um starfið í málefnahópunum og leggja drög að aðalályktun í anda yfirskriftar landsfundarins og nokkrum ályktunum um sérstök málefni. Þessi drög fengu góðar viðtökur og viðbætur á landsfundinum sem auk þess samþykkti fjölda annarra sem verða smám saman birtar hér á síðunni. Hér á eftir fer aðalályktunin og hinar verða mjög bráðlega einnig birtar hér á síðunni.
Frá stjórnmálahópi
Yfirskrift og meginstef þriðja landsfundar Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs er Réttlæti án landamæra. Með þessu móti vill Vinstrihreyfingin - grænt framboð leggja áherslu á víðan sjóndeildarhring og baráttu fyrir réttlátum heimi.
Heimsvæðingin felst að sumu leyti í samþjöppun auðmagns og útþenslu og sífellt meiri áhrifum og yfirráðum stórfyrirtækja. Þessi þróun hefur valdið alþýðu víða um heim miklum búsifjum. Hins vegar opnar heimsvæðingin okkur einnig ný sóknarfæri jafnframt því sem hún leggur okkur skyldur á herðar. Einstaklingar og hópar í fjarlægum heimshornum geta nú kallast á, skipst á skoðunum og bundist böndum í baráttu fyrir betri heimi. Heimsvæðingin opnar þannig lýðræðinu nýja farvegi, sem nýta má til uppbyggingar og til að takast á við viðfangsefni sem eru knýjandi á heimsvísu: Að auka jafnrétti og jöfnuð í heiminum og búa í haginn fyrir framtíðina með því að stuðla að sjálfbærri þróun á öllum sviðum.
* Undir kjörorðinu Réttlæti án landamæra viljum við kveða niður hernaðarhyggju og gera heiminn friðvænlegri en hann er nú.
* Undir kjörorðinu Réttlæti án landamæra viljum við bæta stöðu þróunarlandanna með því að losa kverkatak alþjóðafjármagnsins á snauðum þjóðum.
* Undir kjörorðinu Réttlæti án landamæra einhendum við okkur í baráttu fyrir mannréttindum í heiminum.
* Undir kjörorðinu Réttlæti án landamæra viljum við vinna að kvenfrelsi og berjast af alefli gegn misnotkun og mansali.
* Undir kjörorðinu Réttlæti án landamæra viljum við leggja áherslu á samábyrgð og samhjálp þvert á öll landamæri og stuðla þannig að raunverulegu frelsi einstaklinga og þjóða
* Undir kjörorðinu Réttlæti án landamæra viljum við vinna að sjálfbærri þróun á öllum sviðum með líf komandi kynslóða í huga.
* Undir kjörorðinu Réttlæti án landamæra viljum við að Ísland leggi sitt af mörkum til að draga úr hnattrænni mengun á öllum sviðum með öflugri þátttöku í alþjóðasamningum.
Heimsvæðingin skiptir allan heiminn máli
Til þessa hafa auðvaldsöflin verið ráðandi um gang alþjóðavæðingarinnar og áhrif þeirra eru afgerandi í þeim fjölþjóðastofnunum sem mest láta hana til sín taka. Umræðunni hefur verið haldið lokaðri en Vinstrihreyfingin - grænt framboð hefur skipað sér í framvarðarsveit þeirra sem vinna að því að opna þessa umræðu og færa hana inn á lýðræðislegan vettvang. Þetta er umræða sem varðar líf okkar allra. Heilbrigðisþjónustan, menntakerfið, vatnið og rafmagnið, allt það sem myndar grunnþjónustu velferðarsamfélags ber að efla og bæta. Hvarvetna þar sem farið hefur verið að kröfum fjármagnsins um að einkavæða þessa þjónustu hafa afleiðingarnar verið slæmar, sums staðar hörmulegar. Ofan af þessu er nú flett í hverju landinu á fætur öðru og tala dæmin skýru máli: Hrun einkavæddra rafmagnskerfa, rándýr heilbrigðisþjónusta sem mismunar þegnunum eða vatnsveitur sem mala gull fyrir eigendur sína en er ekki haldið við í þágu notendanna. Um heim allan berjast fjöldahreyfingar nú með vaxandi styrk fyrir því að hindra frekari sókn fjármálaaflanna inn í grunnþjónustu samfélagsins og víða hefur tekist að endurheimta til almennings þjónustu sem áður hafði verið einkavædd.
Á sama hátt og fjármagnsöflin heimta alþjóðavæðingu á sínum forsendum er það hlutverk og skylda félagslegra hreyfinga að treysta lýðræðið í sessi. Þannig eiga heimsvæðingin og baráttan fyrir sjálfsákvörðunarrétti og sjálfstæði þjóðanna samleið. Þetta er kjarninn í alþjóðahyggju Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Okkar nálgun er í því fólgin að styrkja lýðræðið heima fyrir og treysta undirstöður velferðar.
Fjölbreytni í atvinnulífi
Lykilhugtak í stefnu Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs er fjölbreytni á sjálfbærum grunni. Búa þarf vel að hefðbundnum atvinnuvegum en jafnframt skapa nýjum greinum hagstæð vaxtarskilyrði og auka fjölbreytni þess. Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill að íslenskt atvinnulíf verði þróað með hliðsjón af hagsmunum landsmanna allra og því þurfa byggðasjónarmið að hafa vægi við ákvarðanatöku. Jafnframt ber að stuðla að því að atvinnulífið lagi sig að alþjóðlegri þróun og nýti þau tækifæri sem bjóðast í viðskiptum og taki þá um leið fullt tillit til réttinda launafólks í viðkomandi löndum. Því ber að fagna hve mörg íslensk fyrirtæki hafa sótt með góðum árangri á erlenda markaði.
Kjarabaráttan
Vinstrihreyfingin - grænt framboð styður af alefli baráttu launafólks fyrir bættum kjörum. Vinstrihreyfingin grænt framboð veit að kjaramisrétti verður aldrei útrýmt nema með samstöðu og baráttu fyrir stórbættum kjörum láglaunafólks. Vinstrihreyfingin grænt framboð vill fylkja sér með baráttuölflum innan verkalýðshreyfingarinnar og samtaka öryrkja og aldraðra um að koma á jöfnuði og félagslegu réttlæti í landinu.
Fjölskyldan
Íslendingar eiga að geta verið meðal fremstu þjóða á sviði velferðar og almannaþjónustu. Vinstrihreyfingin - grænt framboð leggur áherslu á að velferðarþjónustan sé öllum landsmönnum opin. Hvers kyns mismunun á grundvelli efnahags á ekki að líðast. Kröfum um niðurskurð og einkavæðingu ber að vísa algerlega á bug og hefja þess í stað kröftuga sókn við að byggja velferðarþjónustuna betur upp. Efla verður forvarnir, útrýma þarf biðlistum á heilbrigðisstofnunum og tryggja öryrkjum og öldruðu fólki húsnæði og aðstoð eftir þörfum þess og óskum. Styðja ber alla til að hafa þak yfir höfuðið. Vinstrihreyfingin - grænt framboð leggur áherslu á að efla menntakerfið á öllum stigum þess.
Jafnréttið
Vinstrihreyfingin ? grænt framboð leggur áherslu á fullt jafnrétti kynjanna og jöfnuð allra landsmanna. Markviss barátta til að útrýma fátækt á Íslandi er forgangsverkefni. Þjóðin má ekki sætta sig við að hópar sem skortir afl og stöðu til að sækja sinn rétt búi við lakari kjör en aðrir. Nýir landsmenn eiga að fá sérstakan stuðning þegar þeir setjast hér að í nýju landi með framandi tungu og menningu. Aðgengi og þátttaka fatlaðra eru sjálfsögð borgaraleg réttindi. Hvers kyns mismunun verði bönnuð með lögum og viðurlög sett við brotum á þeim. Kvenfrelsi er mikilvæg forsenda jafnréttis kynjanna og ein af grundvallarforsendum kvenfrelsis er efnahagslegt sjálfstæði. Útrýma ber kynbundnum launamun. Mikilvægt er að berjast af alefli gegn vændi og öðru kynferðislegu ofbeldi.
Umhverfið
Ísland á enn möguleika á að vera í fararbroddi á sviði umhverfismála og náttúruverndar. Framtíðarsýn Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs einkennist m.a. af þeim tækifærum sem felast í nýtingu náttúruauðlinda á forsendum sjálfbærrar þróunar. Lífskjör og velferð núlifandi kynslóða mega ekki byggja á því að náttúrugæðum sé spillt og gengið á rétt þeirra sem erfa landið. Framtíð afkomenda okkar er undir því komin að skammtímahagsmunir, neysluhyggja og gróðafíkn víki fyrir verndun umhverfis og varðveislu náttúrugæða. Virkjun hugvits og þekkingar er lykillinn að farsælu atvinnulífi og samfélagi í sátt við þá náttúru sem við berum ábyrgð á.
Friðarhyggjan
Á alþjóðavettvangi eiga Íslendingar að vera málsvarar jafnréttis og friðar og jafnframt beita sér af alefli gegn heimsvaldastefnu og hernaðarhyggju stórveldanna. Vinstrihreyfingin ? grænt framboð vill að Ísland verði herlaust land og standi utan hernaðarbandalaga. Breytt viðhorf innan Nató með áherslu á svokallaðar fyrirbyggjandi aðgerðir opna enn frekar en áður á þá hættu að þessu hernaðarbandalagi verði beitt sem árásartæki í þágu bandarískrar heimsvaldastefnu.
Ekki aðeins orð, heldur aðgerðir
Vinstrihreyfingin - grænt framboð lætur ekki sitja við orðin tóm, heldur setur fram skýrar hugmyndir um hvernig pólitískum markmiðum hreyfingarinnar verði hrint í framkvæmd. Við höfum þegar lagt fram tillögur um grundvallarbreytingar á núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi. Við viljum byggðatengja veiðikvóta og greiða fyrir strandveiðum og notkun vistvænna veiðarfæra. Tillögur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs eru raunhæf leið til breytinga. Við leggjum áherslu á nýjar leiðir til að styrkja íslenskan landbúnað og treysta byggð í sveitum landsins. Í því skyni hefur Vinstrihreyfingin grænt framboð sett fram tillögur um búsetutengdan grunnstuðning og eflingu lífræns landbúnaðar. Á þann hátt er opnað á fjölbreyttari möguleika til nýsköpunar og þróunar í atvinnulífi strjálbýlisins auk þess sem íslenskum landbúnaði yrði auðveldað að undirbúa nauðsynlegar breytingar vegna nýrra alþjóðasamninga. Við höfum lagt fram tillögur um aðgerðir til stuðnings atvinnurekstri í smáum og meðalstórum fyrirtækjum og viljum tryggja þeim aðgang að fjármagni og nauðsynlegri fjármálaþjónustu, en einnig ráðgjöf og aðstoð við kynningar- og markaðsstarf. Við viljum bæta hag barna og fjölskyldna þeirra og höfum m.a. sett fram útfærðar hugmyndir um sameiginlegt átaksverkefni ríkis og sveitarfélaga til þess að tryggja megi gjaldfrjálsan leikskóla enda er leikskóli orðinn hluti af menntakerfi okkar. Við höfum sett fram tillögur um eflingu félagslegs forvarnastarfs sem lið í aðgerðum til að berjast gegn notkun ávana- og fíkniefna og bæta andlegt og líkamlegt heilbrigði fólks. Við höfum flutt fjölda tillagna um aðgerðir til þess að taka á orsökum kynbundins ofbeldis. Við höfum sett fram tillögur um skipulega samvinnu ríkis, sveitarfélaga og lífeyrissjóða um uppbyggingu félagslegs húsnæðis auk opinberra stofnstyrkja til byggingar leiguíbúða. Við viljum efla lýðræði og upplýsta umræðu og höfum ítrekað sett fram tillögur um þjóðaratkvæði um mikilvæg málefni. Við höfum sett fram tillögu um friðun ákveðinna svæða á hafsbotni til að hindra frekara tjón en orðið er á lífríki og uppvaxtarskilyrðum nytjastofna. Við höfum sett fram markvissar tillögur um þjóðgarða og friðun svæða vegna þess að í slíkum aðgerðum felst ekki aðeins varðveisla náttúruverðmæta heldur einnig ómetanleg tækifæri til framtíðar. Við höfum flutt tillögur um hvernig eigi að standa að atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum við brottför bandaríska hersins.
Þetta eru aðeins nokkur dæmi um það hvernig við viljum sjá stefnu Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á borði sem í orði.
Lokaorð
Við í Vinstrihreyfingunni ? grænu framboði heitum því að standa áfram vaktina í öllu stóru og smáu. Við búum nú við ríkisvald sem er svo heillum horfið að þörf er á sterku aðhaldi. Við munum ekki aðeins veita það aðhald, heldur teflum við fram hugmyndum til breytinga og framfara á öllum sviðum. Við skulum hefja til vegs gildi innihaldsríkra lífsgæða og stuðla að hugarfarsbreytingu meðal landsmanna. Við viljum treysta í sessi þann skilning að maðurinn er hluti af náttúrunni og verður að virða lögmál hennar og vinna með henni í öllum sínum athöfnum. Við heitum því að standa áfram vörð um gildi friðar og lýðræðis, samkenndar og samhjálpar. Okkur má treysta í vörn og einnig í sókn til framfara - til réttlætis án landamæra.

