Úrslit í kjöri til flokksráðs VG
Nokkrar breytingar voru samþykktar á lögum Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs á landsfundinum 7. ? 9. nóvember sl. Samþykkt var að fjölga í stjórn flokksins og flokksráði og bæta við grein um ungliðahreyfinguna. Samkvæmt breytingunum skipa nú eftirtaldir flokksráð: Flokksstjórn, aðal- og varamenn, formenn svæðisfélaga, formenn kjördæmisráða, þingmenn og varaþingmenn flokksins, formaður UVG og 30 kjörnir á landsfundi. Samkvæmt þessu voru 30 félagar kjörnir í flokksráðið í lok landsfundarins um helgina, en talning gat ekki farið fram fyrr en í dag, þriðjudaginn 11. nóvember. 102 félagar greiddu atkvæði þrátt fyrir að fundurinn hafði dregist verulega á langinn. Ógild reyndust 8 atkvæði og einn seðill var auður. Flest atkvæði hlaut Svanhildur Kaaber, fyrrverandi varaformaður flokksins, en röð kjörinna fulltrúa er eftirfarandi samkvæmt atkvæðafjölda:
Svanhildur Kaaber
Sverrir Jakobsson
Ragnar Stefánsson
Ármann Jakobsson
Grímur Atlason
Sveinn Rúnar Hauksson
Ólafur Þ. Jónsson
Stefán Pálsson
Einar Ólafsson
Stefanía Traustadóttir
Ragnar Arnalds
Kristín Halldórsdóttir
Ugla Jóhanna Egilsdóttir
Steingrímur Ólafsson
Óskar Dýrmundur Ólafsson
Ingibjörg Hjartardóttir
Andrés R. Ingason
Þorvaldur Þorvaldsson
Valgerður H. Bjarnadóttir
Úlfar Þormóðsson
Gérard Lemarquis
Sigríður Kristinsdóttir
Hervör Alma Árnadóttir
Finnur Dellsén
Anna Pála Sverrisdóttir
Guðlaug Teitsdóttir
Oddur Ástráðsson
Hallur Gunnarsson
Freyr Rögnvaldsson
Björk Vilhelmsdóttir.

