Fréttir

Ályktað um náttúruvernd og umhverfismál

13.11.2003

Málefni umhverfis- og náttúruverndar eru vinstri grænum mikið hjartans mál og var að mörgu að huga í sérstökum hópi um umhverfismál sem starfaði á landsfundinum undir yfirskriftinni "Hver á sér fegra föðurland og hversu lengi?" Auk þess sem fram kemur um þennan málaflokk í aðalályktun fundarins lagði starfshópurinn fram eigin ályktun sem hér fer á eftir. Málefnahópurinn sem starfaði í aðdraganda landsfundar lagði fram drög að sérályktun um verndun Langasjávar sem samþykkt var lítið breytt.


Ályktun um umhverfismál

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs leggur áherslu á að grundvallaratriði sé að líta á náttúruna sem sjálfstæðan áhrifaþátt og rétt hennar til að þróast á eigin forsendum. Hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar verði ætíð hluti af ákvarðanatöku í samfélaginu.

Landsfundurinn fagnar framkominni náttúruverndaráætlun en lýsir vonbrigðum með metnaðarlausa tillögu umhverfisráðherra um friðlýsingar á grundvelli áætlunarinnar. Í því sambandi minnir fundurinn á tillögur þingflokks VG um stækkun friðlandsins í Þjórsárverum og verndun alls vatnasviðs Jökulsár á Fjöllum. Fundurinn skorar á stjórnvöld að ganga hið fyrsta formlega frá stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs með þeim svæðum sem liggja að jöklinum og samkomulag tekst um við rétthafa og heimamenn að verði hluti af þjóðgarðinum.

Þá minnir fundurinn á að nýverið hefur verið lokið við gerð áfanga í Rammaáætlun um virkjanahugmyndir sem nú bíður kynningar. Með fyrirvara um niðurstöðu þeirrar vinnu í einstökum atriðum er nauðsynlegt að henni verði fram haldið, m.a. könnun og mati á jarðhitasvæðum með tilliti til nýtingar og verndunar.

Samþætta þarf frekari vinnu og úrvinnslu nefndra áætlana og vinnu að skipulagi á öllum stigum og leita eftir sem bestu samstarfi við sveitastjórnir og frjáls félagasamtök sem um víðtækasta verndun. Mikilvægt er að fjárframlög til slíkra félaga séu tryggð til þess að þau geti sinnt hlutverki sínu. Til þess að auðvelda sveitarfélögum að standa við Staðardagskrá 21 og til að leggja grunn að sjálfbærum samgöngum er mikilvægt að koma ákvæðum um hjólreiðabrautir í vegalög sem tryggi að hjólreiðar verði raunverulegur valkostur í samgöngum í þéttbýli.

Fundurinn áréttar mikilvægi verndunar líffræðilegs fjölbreytileika og vistkerfa og leggur áherslu á verndun fjölbreytileika innan og á milli stofna sömu tegunda. Í ljósi umræðu síðustu vikna áréttum við að núverandi löggjöf um verndun villtra laxastofna er algerlega ófullnægjandi. Því krefjumst við þess að tryggt verði að laxeldi leiði ekki til blöndunar framandi stofna við náttúrlega íslenska laxastofna. Slíkt getur valdið óbætanlegu tjóni.

Verndum Langasjó

Langisjór er ein dýrmætasta perla í náttúru Íslands sem varðveita þarf óskerta í þágu komandi kynslóða. Þetta næststærsta stöðuvatn landsins við suðvesturjaðar Vatnajökuls er umlukið stórbrotnum fjallgörðum, fágæt náttúrusmíð og óspillt af manna völdum. Langisjór og umhverfi hans ætti að vera sjálfsagður hluti af Vatnajökulsþjóðgarði.

Nú eru hins vegar blikur á lofti yfir Langasjó vegna virkjunaráforma, þar eð fyrirhugað er að veita Skaftá í þetta kristaltæra stöðuvatn og nýta það sem miðlunarlón fyrir virkjanir í Tungnaá og Þjórsá. Það má ekki verða. Skaftárveita mundi auk þess valda miklum og ófyrirsjáanlegum breytingum á rennsli Skaftár, grunnvatni og ferskvatnsrennsli á láglendi og við byggð í Skaftárhreppi. Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs skorar á stjórnvöld og heimamenn að friðlýsa Langasjó og umhverfi hans hið fyrsta.

 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica