Fréttir

Um Palestínu, Írak og Miðnesheiði

13.11.2003

Utanríkismál komu mikið við sögu á landsfundi Vinstri grænna, bæði í ræðum og í umræðuhópum. Sérstakur hópur starfaði undir yfirskriftinni "Suðurnes án hers" þar sem rætt var fram og aftur hvað við tekur á Suðurnesjum þegar herinn hverfur þaðan eins og vonir standa til. Samþykktar voru ályktanir um átökin milli Ísraels og Palestínu og um lokun bandarísku NATO-herstöðvarinnar á Miðnesheiði.

Burt með múrinn! Aðskilnaðarmúrinn verði rifinn og friðargæslulið sent til Palestínu

Vinstrihreyfingin - grænt framboð krefst þess að ríkisstjórn Íslands beiti sér af alefli gegn hernámi Palestínu og leggist á sveif með þeim þjóðum sem vilja að friðargæslulið á vegum Sameinuðu þjóðanna verði þegar í stað sent á vettvang til að verja saklaust fólk gegn ofbeldisverkum ísraelska hersins. Ísraelsríki hefur frá upphafi rekið útþenslustefnu, virt að vettugi mannréttindi palestínsku þjóðarinnar og beitt hervaldi sínu miskunnarlaust gegn íbúum herteknu svæðanna, jafnt börnum sem fullorðnum.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð lýsir furðu yfir því að íslenska ríkisstjórnin skuli ekki skilyrðislaust fordæma brot ísraelskra stjórnvalda gegn samþykktum Sameinuðu þjóðanna og þá kynþáttastefnu sem ísraelsk stjórnvöld reka og birtist nú síðast í hinum alræmda aðskilnaðarmúr.

Brotthvarf Bandaríkjahers frá Írak

Vinstrihreyfingin-grænt framboð skorar á stjórnvöld að beita sér fyrir því að Bandaríkjaher hverfi strax frá Írak og að hinar Sameinuðu þjóðir taki við uppbyggingarstarfi í landinu í samráði við heimamenn. Ástandið í Írak og Miðausturlöndum er ógn við heimsfriðinn sem aðeins verður bægt frá með virðingu fyrir sjálfsákvörðunarrétti íbúanna og stuðningi Sameinuðu þjóðanna.

Um lokun bandarísku NATO-herstöðvarinnar

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs fagnar því að útlit er fyrir að dregið verði úr umsvifum Bandaríkjshers á Íslandi. Við eigum að nota þetta sögulega tækifæri til að segja upp herstöðvarsamningnum frá 1951 og loka NATO-herstöðinni á Misnesheiði fyrir fullt og allt. Við viljum að Íslendingar eigi sér ímynd sem friðsöm þjóð. Sú ímynd fer ekki saman við að hafa hér hernaðaraðstöðu fyrir árásargjarnt stórveldi sem meirihluti Evrópubúa lítur nú á sem eina helstu ógnina við heimsfriðinn.

Umræða síðustu mánaða hefur sýnt að breytingar á herstöðinni eru óhjákvæmilegar. Þær þurfa að taka mið af hagsmunum íslensku þjóðarinnar en ekki bandarískra hernaðaryfirvalda. Draga verður Bandaríkjastjórn til ábyrgðar fyrir þeirri eyðileggingu sem herinn hefur valdið á umhverfi og náttúru. Íslenskum stjórnvöldum er skylt að sjá til þess að herinn hreinsi til eftir sig í samræmi við ýtrustu kröfur, þótt reikna megi með að það kosti þúsundir ársverka. Jafnframt ber að kanna réttarfarslega stöðu sveitarfélaga og einstaklinga sem orðið hafa fyrir skakkaföllum af völdum hersetunnar og rétt þeirra til skaðabóta.

Herstöðin hefur komið í veg fyrir fjölbreytta og heilbrigða atvinnuþróun á Suðurnesjum, rétt eins og herstöðvar um allan heim gera. Við brottför hersins opnast óteljandi möguleikar til nýsköpunar í atvinnulífi á Suðurnesjum.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica