Ályktun um aðgengi - í tilefni Árs fatlaðra
Vinstri græn á landsfundinum 7. ? 9. nóvember voru almennt afskaplega ánægð með aðstöðuna á Hótel Örk. Þó bar þar skugga á þar sem aðgengi fyrir fatlaða er þar alls ekki í lagi og er það furðulegt með svo tiltölulega nýbyggt hótel sem leggur talsverða áherslu á að laða til sín stóra fundi og einnig stóra hópa til dvalar, m.a. aldraðra. Stjórnendur hótelsins leggja sig vissulega fram um að leysa hvers manns vanda, hækka rúm fyrir fatlaða og hafa tiltæk skáborð þar sem þess er þörf. En við urðum áþreifanlega vör við annmarkana t.d. þegar félagi okkar Guðmundur Magnússon flutti okkur ávarp í tilefni árs fatlaðra og þegar nýkjörin stjórn var kölluð upp á svið. Það gekk ekki beinlínis greiðlega og hljóðalaust.
Ef til vill höfðu sum okkar gott af því að sjá með eigin augum þá mismunun sem fatlaðir verða oft og iðulega fyrir. Landsfundurinn samþykkti einróma eftirfarandi ályktun:
Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs á Ári fatlaðra 2003 bendir á
að mikið skortir á fullt jafnrétti til handa fötluðum í íslensku samfélagi
að aðgengi og samfélagsleg þátttaka hreyfihamlaðra, sjón- og heyrnarskertra og fólks með hvers kyns fötlun, snýst um sjálfsögð borgarleg réttindi
að þegar fatlað fólk er, er á meðvitaðan eða ómeðvitaðan hátt, útilokað frá þátttöku í samfélaginu, þá er um mismunun og réttindabrot að ræða.
Kröfur okkar eru
að réttur allra til þátttöku á mismunandi sviðum mannlífsins sé virtur, án tillits til fötlunar
að sett verði lög sem banni mismunun og viðurlög sett við brotum á þeim lögum, þannig að hið allra fyrsta verði rutt úr vegi hindrunum og útilokun fólks með hvers kyns hömlun
að viðurkennt sé í löggjöfinni að skerðing á aðgengi, jafnt að byggingum sem og tækifærum til mannsæmandi lífs jafngildi mismunun.

