Fréttir

Ályktun landsfundar VG um menntamál

16.11.2003

Einn málefnahópanna á landsfundi VG  7. ? 9. nóvember sl. bar yfirskriftina ?Menntun til sölu??. Þar varð heldur betur þröng á þingi enda um að ræða málefni sem fjöldi félaga okkar reynir þessi árin á eigin skinni. Þátttakendur í hópnum ræddu m.a. fram komnar hugmyndir um styttingu náms til stúdentsprófs sem virðist eingöngu miða að því að þjappa saman námsefni framhaldsskólanna, en mörgum finnst einsýnt að það dragi úr fjölbreytni í námsvali og leiði til aukins brottfalls nemenda. Einnig var rætt um skólagjöld í háskólum og margt fleira sem fólki lá á hjarta og er óhætt að segja að hópurinn svaraði spurningunni í yfirskrift starfsins haarðlega neitandi. Landsfundurinn samþykkti eftirfarandi ályktun:

Ályktun landsfundar Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Hveragerði 7. - 9. nóvember 2003 um menntamál.

Fundurinn lýsir yfir stuðningi við öflugt menntakerfi sem byggist á metnaðarfullri menntastefnu. Um leið og lýst er yfir mikilvægi þess að stöðugt fari fram öflug pólitísk og fagleg umræða um menntun og skólastarf á öllum skólastigum er varað við fljótfærni og flausturskap við ákvarðanatöku í málaflokknum.

Fundurinn ályktar eftirfarandi:
*    Skýrsla menntamálaráðuneytisins um styttingu náms til stúdentsprófs er einhliða og illa ígrunduð.  Hún gerir ráð fyrir að gengisfella nám til stúdentsprófs með því að skerða námstíma. Engin fagleg rök styðja þessar hugmyndir sem lykta af sparnaði ríkisins.  Stytting námsins vinnur gegn gildandi skólastefnu, gerir námið fábreyttara, minnkar val nemenda og gerir skólana einsleita.  Þá er dregið úr sveigjanleika framhaldsskólans sem nú gerir ráð fyrir að nemendur geti tekið námið á 3 ? 5 árum.

*    Skólagjöldum við opinbera háskóla er hafnað.  Nauðsynlegt er að ríkið sinni skyldum sínum við opinbera háskóla af myndarskap sem komi meðal annars fram í fjárframlögum sem taki mið af raunverulegum þörfum skólanna.  Kostnaður við öfluga ríkisháskóla má ekki lenda á nemendum.  Sú upphæð sem sjálfseignarstofnanir innheimta með skólagjöldum komi til frádráttar framlagi ríkisins.

*    Tryggja þarf framkvæmd gildandi skólastefnu og auka námsframboð að loknum grunnskóla til að mæta margvíslegum þörfum nemenda og samfélagsins alls. Einkum þarf að leggja áherslu á starfs-, verk- og listnám.  Hrinda þarf í framkvæmd raunhæfum aðgerðum til að draga úr brottfalli á öllum skólastigum.

*    Leikskólar verði gjaldfrjálsir.  Ríkið og sveitarfélögin fari í sameiginlegt átaksverkefni í þeim efnum. 
 
Fundurinn gerir kröfu um jafnrétti til náms.  Í því felst greiður aðgangur að námi á öllum skólastigum án tillits til búsetu, efnahags eða fjölskylduaðstæðna og líkamlegrar og andlegrar getu.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica