Fréttir

Eflum heilbrigðisþjónustuna

16.11.2003

?Ertu tryggður? Hver er réttur fólks til velferðar?? voru meðal spurninga sem lagðar voru fyrir málefnahóp um heilbrigðishóp á landsfundi Vinstri grænna 7. ? 9. nóvember sl. Verkefni hópsins var ekki smátt í sniðum og ljóst að áfram verða allir þættir þess ræddir og betur skýrðir. Ekki skortir áhugann og vilja til að taka á málum, ekki síst nú þegar hugmyndir um markaðsvæðingu heilbrigðisþjónustu sækja að úr öllum áttum. Rétt er að benda lesendum á að fara inn á vefsíðu Ögmundar Jónassonar www.ogmundur.is og lesa fróðlega grein hans um skýrslur og umræður á ráðstefnu Public Service International (PSI) ? Alþjóðasambands starfsfólks í almannaþjónustu sem hann hefur setið undanfarna daga.

Landsfundur VG samþykkti einróma eftirfarandi ályktun:

Eflum heilbrigðisþjónustuna

Vinstrihreyfingin - grænt framboð hvetur til átaks til að efla og treysta heilbrigðisþjónustuna í landinu. Markið verði sett á að útrýma biðlistum og laga þær brotalamir sem er að finna í kerfinu. VG hefur sett fram tillögur um að efla heilsugæsluna sem grundvöll heilbrigðisþjónustunnar. Reynslan sýnir að heilbrigðisþjónusta sem rekin er af samfélaginu er markvissari og hagkvæmari en heilbrigðiskerfi sem rekið er á markaðsforsendum. Þar sem heilbrigðisþjónustan hefur verið markaðsvædd hefur það leitt til aukins kostnaðar og félagslegrar mismununar. VG telur mikilvægt að heilbrigðiskerfið sæti stöðugri endurskoðun til að tryggja markvissari nýtingu fjármuna í því skyni að efla heilsu þjóðarinnar.  

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica