Fréttir

Umræðunet Vinstri grænna

21.11.2003

Fyrir u.þ.b. ári var hleypt af stokkunum umræðuneti félagsmanna í Vinstrihreyfingunni ? grænu framboði. Tilgangurinn er að tengja saman þá félaga sem aðgang hafa að netinu og gera þeim kleift að skiptast á skoðunum um stjórnmálin frá degi til dags með einföldum hætti. Umræðunetið er á tölvupóstformi og einungis ætlað þeim sem eru skráðir félagar í flokknum og verða félagar að haga póstsendingum sínum inn á þetta net þannig að fram komi fullt nafn sendanda.

 

Reynslan af umræðunetinu er sú að þátttakendum þykir þetta ágætur vettvangur til að skiptast á skoðunum og koma þar á framfæri hugmyndum og ábendingum og hverju því sem þeim liggur á hjarta. Þeir sem óska að skrá sig á vg-torg er bent á að senda tölvupóst á kristin@vg.isog fá leiðbeiningar um hvernig þeir bera sig að.    

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica