Herstöðin í nýju ljósi - fundur í Keflavík
Vinstrihreyfingin - grænt framboð boðar til almenns fundar um þá stöðu sem komin er upp í herstöðvarmálinu. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 27. nóv. kl. 20.00 á Flughóteli í Keflavík. Þar mun Steingrímur J. Sigfússon formaður VG fjalla um málið m.a. út frá breyttum aðstæðum í alþjóðastjórnmálum og öryggismálum. Ólafur Þór Ólafsson bæjarfulltrúi í Sandgerði fjallar um málið af sjónarhóli sveitarstjórnarmanns og Kristján Gunnarsson formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur kynnir viðhorf verkafólks.
Þá verða almennar umræður og fyrirspurnir til frummælenda.
Vinstri grænir ályktuðu um hermálið á nýafstöðnum landsfundi og segir þar m.a.:
"Umræða síðustu mánaða hefur sýnt að breytingar á herstöðinni eru óhjákvæmilegar. Þær þurfa að taka mið af hagsmunum íslensku þjóðarinnar en ekki bandarískra hernaðaryfirvalda. Draga verður Bandaríkjastjórn til ábyrgðar fyrir þeirri eyðileggingu sem herinn hefur valdið á umhverfi og náttúru. Íslenskum stjórnvöldum er skylt að sjá til þess að herinn hreinsi til eftir sig í samræmi við ýtrustu kröfur, þótt reikna megi með að það kosti þúsundir ársverka. Jafnframt ber að kanna réttarfarslega stöðu sveitarfélaga og einstaklinga sem orðið hafa fyrir skakkaföllum af völdum hersetunnar og rétt þeirra til skaðabóta.
Herstöðin hefur komið í veg fyrir fjölbreytta og heilbrigða atvinnuþróun á Suðurnesjum, rétt eins og herstöðvar um allan heim gera. Við brottför hersins opnast óteljandi möguleikar til nýsköpunar í atvinnulífi á Suðurnesjum."
Stjórn VG á Suðurnesjum

