Fréttir

Skoðanakúgun umhverfisyfirvalda

25.5.2004

Ögmundur Jónasson sagði frá því í eldhúsdagsumræðunum í gærkvöldi að nú væri verið að refsa landvörðum sem tjáðu hug sinn til náttúruspjallanna við Kárahnjúka 19. júlí í fyrra með því að flagga í hálfa stöng. Þeir fengju ekki endurráðningu nú í sumar. Mörgum hnykkti við tíðindin og umhverfisyfirvöld lögðust í vörn. Ögmundur tók málið til umræðu við upphaf þingfundar í morgun og reyndi að fá haldbærar skýringar á gangi málsins frá umhverfisráðherra sem að vanda vísaði öllu frá sér. Ögmundur hefur nú sett upplýsingar um málið inn á heimasíðu sína og birtir þar m.a. bréfaskipti landvarðar og Umhverfisstofnunar. Lesendur geta kynnt sér málið frekar á slóðinni

http://www.ogmundur.is/news.asp?id=657&news_ID=1658&type=one

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica