Fréttir

Öflugir ungliðar

22.6.2004

Mikið hefur verið að gera hjá Ungum vinstri grænum að undanförnu og margir nýir bæst í hópinn, tilbúnir til að taka þátt í öflugu starfi. Af því tilefni bjóða Ung vinstri græn í kaffi og létt spjall á fimmtudagskvöldið kl 20:00 í húsakynnum flokksins að Suðurgötu 3. Ungt fólk með áhuga á að taka þátt í skemmtilegum félagsstörfum er hvatt til að kíkja og kynna sér málin. Ekki veitir af nýjum liðsmönnum til að viðhalda góðu starfi en ungliðar eru um þessar mundir að undirbúa sumarhátíð sem verður haldin fyrstu helgina í júlí í nágrenni Reykjavíkur.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica