Fréttir

Minning um land

4.1.2007

Undir miðlunarlóni Kárahnjúkavirkjunnar hvílir nú land sem hvorki stór hluti núlifandi kynslóða né komandi kynslóðir munu fá að kynnast. Vegna þessarar staðreyndar munu Ung vinstri-græn standa fyrir sorgar- og minningarstund næstkomandi laugardag, þann 6. janúar kl. 13:00, að Suðurgötu 3.

Við hvetjum alla félaga, jafnt unga sem aldna, til að mæta. Bakkelsi úr ofnum ungliða verða á borðum og heitir jafnt sem kaldir drykkir til þess að skola því niður með.

 

Tveir flokksfélagar, annar sem hefur notið náttúrudýrðarinnar fyrir austan sem nú er undir lóni og hinn sem mun aldrei fá þess notið, munu taka til máls og minnast landsins. 

 

Þrátt fyrir sorglegt tilefni vilja Ung vinstri-græn jafnframt nýta það til að veita ákveðinum hóp verðlaun fyrir ósérhlífna baráttu fyrir náttúru Íslands. Einnig verður kynnt ljósmyndabók sem stjórn Ungra vinstri-grænna hefur útbúið í samstarfi við Christopher Lund, ljósmyndara. Þessi bók sem framleidd var í einu eintaki verður afhent landsbókasafni til varðveislu. Bókin geymir ljósmyndir af Kárahnjúkasvæðinu áður en því var drekkt. Það er ósk Ungra vinstri-grænna að núlifandi og komandi kynslóðir fái notið þessara mynda sem örlítillar sárabótar fyrir landið sem tekið var frá þeim, þó þær muni aldrei jafnast á við að kynnast landinu af eigin raun.

 

Stjórn Ungra vinstri-grænna

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica