Sumarhátið UVG í Kjósinni
Næstkomandi laugardag, 3. júlí, ætla Ung Vinstri Græn að standa fyrir sumarhátíð upp í Kjós. Ætlunin er að grilla og vera með plötusnúð og skemmtun í húsi Ungmennafélagsins Drengs. Boðið verður upp á pylsur og djús á meðan birgðir endast en fólk er hvatt til að taka með sér á grillið. Einnig verður almenn gleði.
Dagskrá
18:00 Lagt af stað í rútu frá Suðurgötu 3
19:15 Kveikt upp í grillinu
19:20 Æsispennandi fótboltakappleikur milli UVG og Múrsins og grillvaka í lýðræðisanda
21:30 Diskótek í húsi Ungmennafélagsins Drengs
01:00 Áætluð koma í Suðurgötu 3
Nú þegar hafa margir skráð sig en um skráningar sjá:
Anna Pála í netfangið aps@hi.is eða
Huginn Freyr í síma 8213434 og/eða netfangið huginn@hi.is
Hátíðin er ætluð jafnt ungum sem öldnum og eru allir sem áhuga hafa hvattir til að skrá sig sem fyrst.
Mætum glöð og hress á sumarhátíð UVG í Kjósinni um næstu helgi!

