Hlutverk forsetaembættisins
Grein Ögmundar Jónassonar á heimasíðu hans með yfirskriftinni "Sjálfstæðisflokkurinn, Morgunblaðið, forsetaembættið og framtíð þess" hefur vakið athygli og ratað í fréttir fjölmiðla. Hann fjallar þar m.a. um hlutverk forsetaembættisins og hvort það sé æskilegt að auka áhrif og völd forsetans í íslensku samfélagi eins og núverandi forseti hefur talað um. Grein Ögmundar birtist í heild hér í greinahólfi.
Um leið skal bent á grein eftir Þuríði Backman um heilbrigðisþjónustuna og þrjár greinar eftir Steingrím J. Sigfússon sem birtust allar í Morgunblaðinu í júní, en voru fyrst núna að rata inn á heimasíðu VG.

