Fréttir

Öflugir netmiðlar VG

1.7.2004

Vinstrihreyfingin-grænt framboð getur státað sig af öflugum netmiðlum. Heimasíðan er mikið heimsótt og nýtt, en einnig eru einstök félög með eigin síður og er UVG þar virkust. Því miður lá þessi ágæta vefsíða ungliðahreyfingar flokksins niðri um tíma eftir árás skemmdarvarga. Nú hefur því hins vegar verið kippt í liðinn og hefur verið opnuð ný síða á slóðinni www.vinstri.isog er ætlun aðstandenda að halda henni sívirkri þrátt fyrir sumar og sól.

Hér til hliðar er svo krækja á Morgunpóstinn eða www.vg.is/posturen þar má finna pólitíska pistla á hverjum degi. Boðið er upp á að fólk fái pistlana senda í tölvupósti jafnóðum og þeir eru uppfærðir. Þeir sem það vilja geta sent ritstjóra Morgunpóstsins, Svandísi Svavarsdóttur, tölvupóst þess efnis á netfangið svasva@simnet.is

 

Fólk getur síðan áfram fylgst með tilkynningum og fréttum af starfi

flokksins hér á heimasíðu Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs www.vg.is.

 

 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica