Fréttir

Umræðufundur um stöðuna í stjórnmálunum

5.7.2004

Það er ekki tíðindalaust í pólitíkinni þrátt fyrir þennan langþráða tíma ársins þegar flestir geta líklega hugsað sér að heyra sem minnst af þeim vettvangi. Nýjasta útspil ríkisstjórnarflokkanna kom flestum gjörsamlega á óvart og við fylgjumst furðu lostin með yfirlýsingum formannanna í fjölmiðlum, hvernig þeir leyfa sér að meðhöndla lög og stjórnarskrárvarinn rétt landsmanna. Gera má ráð fyrir að VG-félögum liggi ýmislegt á hjarta í þessu sambandi og hafi áhuga á að ræða málið sem allra fyrst og á því gefst kostur annað kvöld, þriðjudaginn 6. júlí, á umræðufundi sem hefst kl. 20:00 í Suðurgötu 3. Þingmenn Vinstri-grænna verða þar til staðar.

 

Aðkoman að húsnæði VG í Suðurgötu 3 er reyndar ekki í sem bestu lagi þessa dagana, þar sem gatan er sundurgrafin, en það þarf þó ekki að hindra okkur í því að hittast og ræða málin.

 

Hittumst sem flest í Suðurgötu 3 kl. 20:00 þriðjudaginn 6. júlí.

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica