Fréttir

Mótmælastaða á Austurvelli

7.7.2004

Framganga ríkisstjórnarflokkanna þessa dagana er svo ótrúleg að sannleikurinn er enn að síast inn í huga margra eftir því sem umræðunni vindur fram. Ríkisstjórnarflokkarnir vilja ekki fyrir nokkurn mun að þjóðin segi sinn hug til fjölmiðlamálsins svokallaða í almennri atkvæðagreiðslu eins og hún á rétt á eftir að forsetinn neitaði að staðfesta lögin. Forystumenn stjórnarflokkanna hafa síðustu vikurnar togast á um mögulega þröskulda og girðingar til að reyna að gera þessa atkvæðagreiðslu svo flókna og erfiða að enginn gæti botnað neitt í neinu. Þeir náðu ekki saman fyrr en einhverjum datt það "snjallræði" í hug að láta Alþingi bara fella þessi umdeildu lög úr gildi svo að ekki væri hægt að kjósa um þau og setja þau svo aftur í gildi með smávægilegum breytingum - í sama frumvarpinu!!!

Stór hluti landsmanna lætur ekki bjóða sér upp á þessar trakteringar þegjandi og hljóðalaust. Ýmsum þeirra gefst tækifæri til að láta í sér heyra á morgun, fimmtudaginn 8. júlí, þegar Þjóðarhreyfingin boðar til mótmælastöðu fyrir framan Alþingishúsið í hádeginu á morgun. Mótmælastaðan hefst kl. 12:30.

Vinstri-grænir eru hvattir til að mæta á Austurvöll kl. 12:30 á morgun, fimmtudaginn 8. júlí, til að mótmæla því að svipta á þjóðina stjórnarskrárvörðum kosningarrétti!

VIÐ VILJUM KJÓSA! ÞAÐ ER OKKAR RÉTTUR!

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica