Fréttir

Ríkisstjórnin ætlar að hafa af mönnum kosningaréttinn

8.7.2004

"Herra forseti. Það er augljóst hvað ríkisstjórnin ætlar sér. Það er algerlega augljóst hverjum manni og ég trúi því að 95% þjóðarinnar verði með það á hreinu þegar vikunni lýkur, þegar menn hafa fylgst með þessari umræðu og skoðað þessi mál. Ríkisstjórnin ætlar eina ferðina enn að beita meirihlutavaldi sínu af ýtrustu hörku og þjösnaskap og hafa með því af þjóðinni kosningaréttinn. Auk þessa er ætlunin að setja forseta lýðveldisins í alveg sérstaka klemmu. Það hafa menn líka komið upp um, þökk sé lausmælginni í hæstv. fjmrh. Hann hefur líka talað það af sér. Það er nefnilega ætlunin, að hafa þetta svo þrælslegt til að forsetinn komist í vanda og standi frammi fyrir því að staðfesta og synja sömu lögum, bæði því að fella eldri lögin úr gildi en setja þau inn aftur."

Ofanritað er tilvitnun í ræðu sem Steingrímur J. Sigfússon flutti við fyrstu umræðu á Alþingi um frumvarp ríkisstjórnarinnar þar sem hún leggur til í einu og sama frumvarpinu að hin umdeildu fjölmiðlalög verði felld brott og jafnframt lögleidd á nýjan leik með örlitlum breytingum. Ræða Steingríms er birt í heild sinni í greinahólfi síðunnar undir fyrirsögninni "Stjórnarskrárréttinn ber að virða". 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica