Fréttir

Sumarferð VG að Langasjó 6. - 8. ágúst

13.7.2004

Eins og sagt var frá í Fréttabréfi VG í maí sl. verður árleg sumarferð Vinstri-grænna farin helgina 6. ? 8. ágúst og nú er stefnan tekin á Langasjó. Tilhögun ferðarinnar er óðum að skýrast og verður í stórum dráttum þannig að lagt verður af stað með langferðabíl frá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík föstudaginn 6. ágúst kl. 17:00 og ekið sem leið liggur austur í Skaftártungu þar sem gist verður í Félagsheimilinu Tunguseli næstu 2 nætur. Þar eru svefndýnur fyrir um 50 manns, en einnig er ágæt aðstaða til að tjalda fyrir þá sem það vilja. Vafalaust koma félagar einnig á eigin bílum, en geta nýtt sér rútuna á laugardaginn þegar farið verður að Langasjó og stórbrotið umhverfið þar skoðað. Um kvöldið á fólk saman gleðistund í Tunguseli við mat og drykk og góða samveru. Á sunnudag verður ekið til baka með rútunni, e.t.v. eftir einhverjum krókaleiðum, og komið til Reykjavíkur að kvöldi.

Verð getur verið með ýmsu móti eftir því hvað fólk er að kaupa, en hafa má eftirfarandi til viðmiðunar:

Þau sem ferðast með langferðabílnum frá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík greiða 5000 kr, þau sem koma í bílinn af svæðinu fyrir austan fjall greiða 4000 og þau sem nýta rútuna aðeins á leiðinni frá Tunguseli til og frá Langasjó greiða 2000 kr.

Gisting á dýnu kostar 1300 kr. eina nótt, 2600 í tvær, tjaldgisting 500 kr., 1000 í 2 nætur.

Morgunverður kostar 500 kr. hvorn morgun, en fólk nestar sig á föstudaginn.

Flokkurinn býður til kvöldverðar á laugardagskvöldið.

Verðið getur þar af leiðandi orðið allt frá 4000 kr. - fyrir 2 nætur í tjaldi, 2 x morgunverð og far með rútunni í Langasjó - og upp í 8600 kr. - fargjald alla leið, 2 nætur á dýnu í Tunguseli og 2 x morgunverður.

 

Fólk er hvatt til að skrá sig sem fyrst hjá Kristínu í síma 563 0771 eða 892 7657.

Einnig má skrá sig á netfang flokksins vg@vg.is

Gefa þarf upp síma og/eða netfang.    

 

Nú ættu allir sem ekki hafa augum litið Langasjó að nota tækifærið og skoða þessa dýrmætu perlu í náttúru landsins. Þetta næststærsta stöðuvatn landsins við suðvesturjaðar Vatnajökuls er umlukið stórbrotnum fjallgörðum, fágæt náttúrusmíð og óspillt af manna völdum. Á landsfundi VG í nóvember sl. var ályktað um nauðsyn þess að vernda Langasjó. Í ályktuninni sagði m.a.: "Nú eru hins vegar blikur á lofti yfir Langasjó vegna virkjunaráforma, þar eð fyrirhugað er að veita Skaftá í þetta kristaltæra stöðuvatn og nýta það sem miðlunarlón fyrir virkjanir í Tungnaá og Þjórsá. Það má ekki verða. Skaftárveita mundi auk þess valda miklum og ófyrirsjáanlegum breytingum á rennsli Skaftár, grunnvatni og ferskvatnsrennsli á láglendi og við byggð í Skaftárhreppi. Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs skorar á stjórnvöld og heimamenn að friðlýsa Langasjó og umhverfi hans hið fyrsta."

 

Bestu kveðjur frá Hugin og Kristínu

 

 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica