Eftirsótt ferð Vinstri-grænna að Langasjó
Það fór sem vænta mátti að marga langar að líta umhverfið við Langasjó augum meðan það er tiltölulega ósnortið og óspillt af manna völdum. Fjöldi þátttakenda hefur farið fram úr því sem búist var við, en þá er bara að breyta svolítið bílamálum og matarkaupum og allt á þetta að ganga upp.
Enn eru félagar að spyrjast fyrir og velta fyrir sér þátttöku, en nú eru að verða algjörlega síðustu forvöð ef fólk ætlar ekki að missa af þessu gullna tækifæri. Hringið því endilega sem fyrst í mig í 563 0771 eða 892 7657 eða sendið mér orð á vg@vg.is.
Um frekari upplýsingar vísast til fréttarinnar hér neðar á síðunni "Sumarferð VG að Langasjó 6. ? 8. ágúst".

