Fréttir

Ályktun um tengsl Íslands og ESB

11.8.2004

Öðru hverju finna forystumenn Samfylkingar og Framsóknarflokks sér tilefni til að minna á viðhorf sín til tengsla Íslands og Evrópusambandsins og hafa einmitt nýlega gefið yfirlýsingar um nauðsyn þess að auka og herða slík tengsl. Í tilefni af því hefur þingflokkur VG látið frá sér fara svohljóðandi ályktun:

 

"Í kjölfar umræðu að undanförnu um tengsl Íslands og Evrópusambandsins og mögulega aðild Íslands að ESB vill þingflokkur VG  árétta eftirfarandi:

 

Nýlega hefur samráðsnefnd á sviði Evrópumála hafið störf og er hún skipuð fulltrúum allra stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi. Verkefni nefndarinnar eru m.a. að kanna framkvæmd EES-samningsins, hvort og þá hvers konar undanþágur séu veittar í aðildarsamningum að Evrópusambandinu, hvað  aðild myndi kosta ríkissjóð til lengri og skemmri tíma og hverjir væru kostir og gallar evrunnar fyrir Íslendinga. Þá er nefndinni ætlað að skilgreina og skýra stöðu Íslands miðað við nýgerða stjórnarskrá Evrópusambandsins og ýms álitaefni önnur. VG fagnar tilkomu þessa þverpólitíska vettvangs og telur mikilvægt að nefndinni gefist nú tóm til að vinna sitt verk og svara þeim mikilvægu spurningum sem fyrir hana eru lagðar. Einnig er mikilvægt og skynsamlegt í senn að fylgjast vel með framvindu mála, ekki síst hvernig hin nýja stjórnarskrá ESB þróast og hver verður staða smærri ríkja á grundvelli hennar og í stækkuðu Evrópusambandi.

 

Engin ástæða er til þess asa sem gætt hefur m.a. í yfirlýsingum í tengslum við leiðtogafund norrænna krata hér á landi nýverið. Norðmenn fara sér rólega sbr. ummæli  Kjell Magne Bundevik forsætisráðherra þess efnis að ekki sé líklegt að málið verði afgerandi kosningamál í Noregi í haust og að öllum líkindum dragi ekki til neinna stórtíðinda þar á næstu 4 ? 5 árum að minnsta kosti.

 

Að mati þingflokks VG hefur ekkert breyst í grundvallaratriðum í þessu efni. Vinstri-grænir telja að Íslendingar eigi að rækta tengsl og samstarf við Evrópusambandið sem og aðrar þjóðir á sjálfstæðum forsendum."

 

 

 

 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica