Fréttir

Húrra fyrir Þóreyju Eddu!

30.8.2004

Það er nú nokkuð um liðið síðan Þórey Edda stökk á stönginni sinni í 5. sætið á Ólympíuleikunum í Aþenu. Þá var hins vegar undirrituð í hestaferð og hvergi hægt að komast í tölvu til að hrópa húrra á vg.is, og nú er einfaldlega þannig skipað í starfsliði VG að öðrum er ekki til að dreifa sem sett gæti þessa stórfrétt á heimasíðuna okkar. En betra er seint en aldrei og ekki hægt annað en að hafa slíkt afrek eins af okkar ágætu félögum "skjalfest".

Sem sagt ? eins og allir vita sýndi Þórey Edda Elísdóttir heimsbyggðinni hvað í henni býr þegar hún stökk 4.55 metra og var reyndar mjög nærri því að fara yfir 4.65 og ná bronsverðlaununum. Til þess að vinna slíkt afrek þarf ekki aðeins líkamlegt atgervi og þrotlausar æfingar árum saman, heldur ekki síður andlegan styrk, jákvæðni, sjálfstraust og baráttuþrek. Og við sem unnum með Þóreyju Eddu í kosningabaráttunni 2003 kynntumst einmitt þessum eiginleikum hennar, en eins og við munum skipaði hún 2. sæti á lista Vinstri-grænna í Suðvesturkjördæmi og vakti mikla athygli fyrir skelegga framgöngu.

Vinstri-græn eru afar stolt af afreki Þóreyjar Eddu og óska henni innilega til hamingju og alls hins besta framvegis. Húrra fyrir Þóreyju Eddu!

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica