Fréttir

Landssímann áfram í almannaþjónustu

31.8.2004

Enn eina ferðina er ríkisstjórnin farin að huga að því að gera sér mat úr eign landsmanna í fyrirtæki því sem nú nefnist Síminn, en hét áður Landssíminn. Atrennur í þá átt hafa reynst sneypufarir, en nú er fullyrt að undirbúningur að sölu þessa mikilvæga fyrirtækis í almannaþjónustu sé á fullu skriði. Og svo virðist af yfirlýsingum stjórnarliða í fjölmiðlum að það hafi fullan stuðning beggja stjórnarflokka.

 

Þingflokkur Vinstri-grænna fjallaði um málið á fundi sínum í gær, 30. ágúst, og samþykkti þar eftirfarandi ályktun sem send var á fjölmiðla:

 

"Þingflokkur Vinstri-grænna telur það úrslitaatriði hvað varðar byggðaþróun og jafna stöðu landsmanna að öllum sé tryggður fullnægjandi og jafngildur aðgangur að  nútíma fjarskiptum. VG hafnar því að uppbygging og framtíðarþróun fjarskipta ráðist alfarið af þröngum markaðssjónarmiðum. Færsla Landssímans úr opinberri eigu yfir í einkavætt einokunarumhverfi er byggðafjandsamleg og andfélagsleg aðgerð. Slíkt er einnig í andstöðu við vilja meirihluta þjóðarinnar, en niðurstöður skoðanakönnunar sem Gallup gerði fyrir nokkru sýndu að um 60% landsmanna vildu að Síminn yrði áfram í opinberri eigu.

 

Þingflokkur Vinstri-grænna telur eindregið að hagsmunum landsmanna sé að þessu leyti best borgið með því að Landssíminn sé rekinn áfram sem almannaþjónustufyrirtæki í opinberri eigu og hafi þær skyldur að tryggja að landsmenn allir, án tillits til búsetu, hafi á hverjum tíma aðgang að fyrsta flokks fjarskiptaþjónustu.

 

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs ákvað á fundi sínum í morgun að meðal fyrstu mála sem þingmenn flokksins munu leggja fram á komandi þingi verða endurflutt frumvarp um að fella úr gildi heimildir til sölu Landssímans, tillaga til þingsályktunar um breiðbandsvæðingu og tillaga til þingsályktunar um uppbyggingu gsm-kerfisins. "

 

Spillingarvefir spunnir sem aldrei fyrr

Þá er ástæða til að benda lesendum á pistil Ögmundar á heimasíðu hans undir yfirskriftinni "Beðið eftir réttu aðilunum". Þar fjallar hann um aðkomu stjórnarliða að einkavæðingunni og segir m.a.: "Sú var tíðin að í Framsóknarflokknum var að finna marga helstu talsmenn samvinnuhugsjónarinnar í landinu. Sú tíð er löngu liðin. Framsóknarflokkurinn stendur í sumum efnum fullt eins langt til hægri og harðdrægustu markaðshyggjumenn í Sjálfstæðisflokknum enda hefur honum verið lýst sem skúffu í skrifborði  Sjálfstæðisflokksins." Pistilinn má lesa í heild á slóðinni http://www.ogmundur.is/news.asp?id=657&news_ID=1822&type=one

 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica