Fréttir

Íbúðalánasjóður mikilvæg kjölfesta

6.9.2004

Vinstri- græn í Reykjavík efndu til fundar um hræringarnar á húsnæðis- og lánamarkaðinum um helgina. Ögmundur Jónasson þingmaður og Hallur Magnússon, rekstrarráðgjafi höfðu framsögu. Í lok umræðunnar var samþykkt eftirfarandi ályktun:

"Almennur fundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Reykjavík um húsnæðismál fagnar vaxtalækkunum í bönkum, lífeyrissjóðum og hjá Íbúðalánasjóði. Þessar vaxtalækkanir eru lántakendum mjög til hagsbóta.

Fundurinn leggur jafnframt áherslu á að standa vörð um Íbúðalánasjóð sem er lánakerfinu öllu til aðhalds og mikilvæg kjölfesta íbúðalánaerfisins á Íslandi.
Mikilvægt er að stórbæta húsnæðiskjör efnalítils fólks og þarf í því sambandi að hækka húsaleigubætur verulega. Það er ámælisvert hvernig ríkisvaldið neitar að axla ábyrgð sína í þessu efni og veltir kostnaðarbyrðum í síauknum mæli yfir á sveitarfélögin. Þá er ljóst að hækkun vaxta til félagslegra byggingaraðila hefur orðið til að hækka leigu verulega hjá skjólstæðingum þeirra á undanförnum misserum og árum. Mikilvægt er að átak verði gert til að bæta hlut þessara aðila."

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica