Hauststarfið mikið og fjölbreytt
Það er mikið um að vera á vettvangi Vinstri grænna um þessar mundir. Hauststarfið er mikið og fjölbreytt og undirbúningur vetrarstarfsins komið í fullan gang. Reglubundnir laugardagsfundir VGR eru hafnir, ungliðafundir eru oftast á fimmtudögum, bæjarráðsfundir Akureyringa á mánudögum o.s.frv. Aðalskrifstofan reynir hvað hún getur að hafa yfirsýn og setja upplýsingar inn í dálkinn "Á döfinni". Reyndar mættu félagar utan höfuðborgarsvæðisins muna oftar eftir því að láta vita af sínum högum því öll viljum við vita hvað hin eru að gera þótt við komumst ekki á alla fundi hvar sem er.
Þingmennirnir hafa verið talsvert á ferðinni og eru t.d. núna á ferð um Norðvestur- og Norðausturkjördæmi. Þeir voru með hádegisfund á Blönduósi í gær og kvöldfund á Sauðárkróki. Í dag er hádegisfundur á Siglufirði og kvöldfundur á Ólafsfirði. Á morgun verður hádegisfundur á veitingahúsinu Pengs á Akureyri og síðan verða Steingrímur og Þuríður á aðalfundi VG á Héraði, Seyðisfirði og Borgarfirði eystra, og síðan tekur við fundur Fjórðungssambandsins.
Aðalfundir félaga verða hver af öðrum fram eftir hausti. Vinstri græn í Reykjavík halda aðalfund sinn 25. september og kjördæmisráð VG í Suðurlandi sama dag. Ungliðarnir halda svo landsfund sinn á Akureyri laugardaginn 2. september.

