Öflugt starf UVG
Ungu fólki fjölgar sífellt í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði og það situr ekki með hendur í skauti. Það undirbýr nú árlegan landsfund sinn sem haldinn verður á Akureyri laugardaginn 2. október nk. Þá halda ungliðar úti sérstakri vefsíðu http://www.uvg.vg/ með greinum og fréttum af starfinu.
Nýstofnuð Reykjavíkurdeild UVG hefur starfað af krafti allt frá stofnun 28. ágúst sl. Stjórn deildarinnar skipa eftirtalin: Aðalstjórn: Freyr Rögnvaldsson, formaður, Dagur Snær Sævarsson, varaformaður, Auður Lilja Erlingsdóttir, ritari, Sverrir Aðalsteinn Jónsson, gjaldkeri, Björg Þórsdóttir, Elías Jón Guðjónsson, Guðmundur Björnsson. Varamenn (eftir röð): Arngrímur Vídalín, Auður Alfífa Ketilsdóttir, Stefán Ágúst Hafsteinsson, Haraldur Proppé Hugoson.
Reykjavíkurdeildin hefur þegar haldið nokkra fundi um margvísleg málefni og efna nú til opins umræðufundar nk. fimmtudag 16. september um réttindastöðu samkynhneigðra. Þorvaldur Kristinsson, formaður Samtakanna 78, hefur framsögu og svarar spurningum, og síðan verður létt spjall yfir kaffibollum. Fundurinn verður í Suðurgötu 3 og hefst kl. 20: á fimmtudagskvöldið. UVG hvetur unga sem eldri að láta sjá sig þar og ræða málin.

