Fréttir

Þjóðarsátt um bætt kjör kennara

22.9.2004

Á fundi stjórnar Vinstri-grænna í Kópavogi 18. september sl. var samþykkt eftirfarandi ályktun:

"VG Kópavogi hvetur til þjóðarsáttar um kjarabætur til handa kennurum. Flokksfélagið harmar að til verkfalls hafi komið og skorar á deiluaðila að komast að samkomulagi hið allra fyrsta. Kjör kennara eru til skammar í okkar þjóðfélagi á sama tíma og sífellt meiri ábyrgð er velt yfir á stéttina. Foreldrar og samfélag gera kröfur um góða skóla og þá verða kjör starfsfólksins að vera í samræmi við kröfurnar.

Stjórn VG í Kópavogi skorar á stjórnvöld sveitarstjórna og landsmála að taka höndum saman með verkalýðsfélögum um nýja þjóðarsátt. Þjóðarsátt um réttlát laun til handa kennurum."

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica