Fréttir

Utanríkismálanefnd Alþingis ræði Íraksmálið

23.9.2004

Allt frá því að farið var að gera því skóna að innrás í Írak kæmi yfirleitt til greina hafa farið fram miklar umræður, munnlegar og skriflegar, um aðdraganda og lögmæti ákvarðana um þau efni. Unnar hafa verið rannsóknir og skýrslugerðir austan hafs og vestan og nýlega tjáði Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, sig þannig að ljóst er að hann er ekki sáttur við feril málsins. Mikill meirihluti Íslendinga var andvígur þeirri ákvörðun íslenskra ráðherra að lýsa stuðningi þjóðarinnar við innrásina í Írak. Vinstri-grænir hafa ítrekað gagnrýnt þá ákvörðun og hvernig að henni var staðið og nú hefur Steingrímur J. Sigfússon sent formanni utanríkismálanefndar Alþingis bréf með beiðni um fund í nefndinni þar sem farið yrði rækilega yfir málið. Bréf Steingríms er svohljóðandi:   

Formaður utanríkismálanefndar

frú Sólveig Pétursdóttir

Alþingi

 

Ég undirritaður fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs í utanríkismálanefnd óska hér með eftir fundi í nefndinni við fyrsta hentugleika.  Á dagskrá fundarins verði stuðningur Íslands við innrásina í Írak í mars á síðasta ári og umræða um aðdraganda hennar.  Óska ég eftir því að meðal fundargagna verði helstu rannsóknaskýrslur sem komið hafa út austan hafs og vestan þar sem rakinn er aðdragandi ákvarðana um innrásina í Írak.  Æskilegt væri að gerðir væru úrdrættir eða stuttar samantektir úr þessum helstu skýrslum til að auðvelda nefndarmönnum að setja sig inn í þau mál.  Sérstaklega er hér átt við Hutton-skýrsluna svonefndu frá Bretlandi og skýrslu bandarískra stjórnvalda og bandaríska þingsins. Einnig væri æskilegt að helstu gögn frá Ástralíu, Danmörku og víðar að, þar sem aðstæður eru sambærilegar að einhverju leyti og á Íslandi (ríki í ?hópi hinna staðföstu?), væru reidd fram, svo og annað sem tengist umræðum um lögmæti ákvarðana um innrásina, sbr. nýleg ummæli Kofi Annans, aðalritara Sþ.  Jafnframt óska ég eftir að á dagskrá fundarins verði umræður um hvernig utanríkismálanefnd og/eða Alþingi geti í framhaldinu unnið að því að upplýsa þessi mál og allan aðdraganda þess að Íslendingar lýstu stuðningi við innrásina í Írak.

 

 

20. september 2004

 

Virðingarfyllst

 

Steingrímur J. Sigfússon 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica