Fréttir

Ung vinstri græn halda landsfund sinn á Akureyri 2. október

23.9.2004

Laugardaginn 2. október verður aðalfundur UVG haldinn í sal Fiðlarans á þakinu á Akureyri. Ungliðar í VG hugsa gott til glóðar að verja saman helginni í höfuðstað Norðurlands, ræða þar brýnustu málefni líðandi stundar, horfa til framtíðar, efla kynnin og treysta böndin. Lofað er glaum og gleði á laugardagskvöldið.

 

Auk almennra aðalfundarstarfa verður á dagskrá pallborðsumræða um utanríkismál. Allir félagar 30 ára eða yngri í Vinstrihreyfingunni ? grænu framboði eiga seturétt á fundinum.en upplýsingar um þátttakendur verða birtar á vef UVG, www.vinstri.is þegar hlutaðeigandi hafa staðfest þátttöku.  

 

Öllum kostnaði þátttakenda er haldið í algjöru lágmarki. Séð er fyrir svefnpokagistingu á Akureyri. Rútuferð er í boði frá Reykjavík á föstudaginn og suður aftur á sunnudag. Farið verður frá Suðurgötu 3 kl. 17:30 á föstudaginn. Þau sem hafa áhuga á að nýta sér þennan ferðamáta þurfa að senda tölvupóst sem allra fyrst á netfangið oda2@hi.is  Reynt verður að koma til móts við þau sem ekki geta nýtt sér rútuferðina.    

 

Þeir sem hyggjast gefa kost á sér í stjórnarkjöri þurfa að skila inn framboðum í síðasta lagi fimmtudaginn 30. september til Auðar Lilju Erlingsdóttur, ale@hi.is

 

Dagskrá aðalfundar UVG á Akureyri 2. október 2004

 

09:15 ........................ Mæting á fundarstað

09:30 ? 10:30 ............ Setning og almennar stjórnmálaumræður

10:30 ? 11:30 ............ Hópastarf

11:30 ? 12:30 ............ Pallborð um utanríkismál

12:30 ? 13:00 ............ Hádegishlé

13:00 ? 13:45............. Umræður og afgreiðsla ályktana

13:45 ? 14:15 ............ Lagabreytingar afgreiddar

14:15  - 14:30 ...........  Hlé

14:30 ? 16:00 ............ Kjör stjórnar

16:00 ........................ Fundi slitið

 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica