Fréttir

Ályktanir VG á Suðurnesjum

27.9.2004

Vinstri grænir á Suðurnesjum héldu félagsfund 22. september í Keflavík. Þar kusu þeir fulltrúa í kjördæmisráð VG í Suðurkjördæmi og ræddu stjórnmál líðandi stundar. Var þar af nógu að taka og voru m.a. menntamál almennt svo og kjaradeila kennara og sveitarfélaga þar ofarlega á blaði, en ekki ályktað um þau efni að svo stöddu. Hins vegar þótti ástæða til að láta í sér heyra um átökin í Írak og aðkomu íslensku ríkisstjórnarinnar að þeim, einnig um hermálin á Miðnesheiði og loks fjáraustur Reykjanesbæjar í einn fjölmiðil þar í bæ. Ályktanir VG á Suðurnesjum fara hér á eftir.

Nýja ríkisstjórn, takk
Þeir þjóðarleiðtogar sem studdu hernám Bandaríkjamanna í Írak eiga nú allir undir högg að sækja ? nema Halldór Ásgrímsson. Honum hefur nú verið sparkað upp á við ? í stól forsætisráðherra. Hann og Davíð Oddsson bera ábyrgð á því að Ísland er komið í dapurlegan félagsskap meðal ríkja heims (sbr. kvikmynd Michaels Moore, Farenheit 9-11). Fundur Vinstri grænna á Suðurnesjum, haldinn 22. sept. 2004, telur brýnt að þessi ríkisstjórn hernaðar gegn landinu okkar, fiskimiðunum og saklausum borgurum í Írak, Afganistan og víðar verði leyst af hólmi sem fyrst af ríkisstjórn sem vinnur í anda alþjóðalaga og stuðlar að friði og fjölbreyttu atvinnulífi. Fjölmiðlasukk á Suðurnesjum Félagsfundur Vinstri grænna á Suðurnesjum, haldinn 22. sept. 2004, lýsir vanþóknun á að Reykjanesbær ausi fé í einn fjölmiðil fyrir það eitt að sinna þeirri sjálfsögðu skyldu sinni að fjalla um skólamál. Fundurinn telur það ekki vera í verkahring sveitarstjórnar að ráðskast með hvað skrifað er í frjálsa fjölmiðla. Fundurinn telur að við þurfum á öflugum og óháðum fjölmiðlum að halda sem geta veitt bæjarstjórn stærsta sveitarfélagsins á Suðurnesjum eðlilegt aðhald.

Herinn má fara ? en úrbætur skortir í atvinnumálum
Ljóst hefur verið í meira en áratug að kaninn myndi draga saman seglin á Miðnesheiði, spurningin er aðeins hversu mikið og hversu hratt. Öllum ætti að vera ljóst að Bandaríkjaher er hér fyrir Bandaríkin og að breytingar á herstöðinni eru óhjákvæmilegar þegar þeim sýnist svo. Þeim ber þó siðferðileg skylda til að taka mið af hagsmunum íslensku þjóðarinnar. Draga verður Bandaríkjastjórn til ábyrgðar fyrir eyðileggingu sem herinn hefur valdið á umhverfi og náttúru hér á Suðurnesjum. Íslenskum stjórnvöldum er skylt að sjá til þess að herinn hreinsi eftir sig. Jafnframt ber að kanna réttarfarslega stöðu sveitarfélaga og einstaklinga sem orðið hafa fyrir skakkaföllum af völdum hersetunnar og rétt þeirra til skaðabóta. Herstöðin hefur komið í veg fyrir fjölbreytta og heilbrigða atvinnuþróun á Suðurnesjum, rétt eins og herstöðvar um allan heim gera. Við brottför hersins opnast óteljandi möguleikar til nýsköpunar í atvinnulífi á Suðurnesjum sem stjórnvöldum ber að aðstoða Suðurnesjamenn við að nýta.

Fjölmiðlasukk á Suðurnesjum

Félagsfundur Vinstrigrænna á Suðurnesjum haldinn 22. sept. 2004 lýsir vanþóknun á að Reykjanesbær ausi fé í einn fjölmiðil fyrir það eitt að sinna þeirri sjálfsögðu skyldu sinni að fjalla um skólamál.

Fundurinn telur það ekki vera í verkahring sveitarstjórnar að ráðskast með hvað skrifað er í frjálsa fjölmiðla. Fundurinn telur að við þurfum á öflugum og óháðum fjölmiðlum að halda sem geta veitt bæjarstjórn stærsta sveitarfélagsins á Suðurnesjum eðlilegt aðhald.

 

Senda grein


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica